Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf. Starfsstöð er á móttökustöð Sorpstöðvarinnar á Strönd í Rangárþingi ytra.
Helstu verkefni:
Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsmannahaldi
Frekari þróun og uppbygging Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. í samvinnu við stjórn
Ábyrgð á móttökustöðinni á Strönd og grenndarstöðvum
Umsjón með skipulagningu sorphirðu
Umsjón með rekstri og viðhaldi bifreiða og véla
Ábyrgð á samskiptum við opinberar stofnanir og eftirlitsaðila
Þátttaka í áætlanagerð og eftirfylgni með áætlunum
Menntunar- og hæfnikröfur:
Menntun sem nýtist í starfi
Mikill áhugi á sviði umhverfis- og úrgangsmála
Góð tölvukunnáttu og þekkingu á upplýsingatækni
Reynsla af stjórnun, rekstri og mannaforráðum kostur
Góð þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu
Mikil þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð
Meirapróf og vinnuvélaréttindi kostur
Þekking á viðhaldi bifreiða og véla kostur
Hjá Sorpstöð Rangárvallasýslu starfa um 7 starfsmenn í föstu starfi auk 3–4 í hlutastarfi. Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. er byggðasamlag í eigu Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps og þjónustar alla Rangárvallasýslu.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um stöðuna.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2025.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Umsóknir sem og fyrirspurnir skal senda á formann stjórnar Sorpstöðvarinnar, Eggert Val Guðmundsson á eggertvalur@ry.is
