Íþrótta- og tímstundastyrkur, frá 1. janúar 2025 eru að hámarki kr. 100.000 á ári.
Þessar reglur gilda um styrkinn, frá 2025:
Styrkurinn er fyrir börn og ungmenni upp að 18 ára aldri, miðað við fæðingarár. Skilyrði er að bæði barn og foreldri eigi lögheimili og séu með aðsetur í Ásahreppi.
Styrkinn er hægt að nýta til niðurgreiðslu á skipulögðu starfi sem er stundað undir leiðsögn viðurkenndra þjálfara eða leiðbeinanda. Þetta á við um starfsemi viðurkenndra íþróttafélaga, æskulýðsfélaga, nám við tónlistarskóla, dansskóla, myndlistarskóla og fl. Meginmarkmið tómstundastyrksins er að auka valfrelsi, jafnrétti og fjölbreytni á sviði íþrótta- og tómstunda með þátttöku barna og unglinga í uppbyggilegu frístundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
Gildi þess að taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga er ótvírætt hvað varðar líkamlega, andlega og félagslega heilsu. Íþrótta- og tómstundastyrkurinn nemur allt að 100.000.- kr. á árinu 2025 á hvern iðkenda. Styrkur getur aldrei orðið hærri en sem nemur æfingagjaldi viðkomandi íþrótta- eða tómstundagreinar. Styrkumsækjandi skal skila inn þar til gerðu umsóknareyðublaði sem nálgast má á heimasíðu Ásahrepps ásamt greiðslukvittun til skrifstofu Ásahrepps, á netfangið asahreppur@asahreppur.is eða í pósti. Á greiðslukvittun þarf að koma fram nafn/kennitala félags, nafn og kennitala iðkenda, dagsetning greiðslu, íþrótt/tómstund og tímabil. Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. des, fyrir árið 2025.
Verði um ofgreiðslu að ræða á styrki áskilur Ásahreppur sér rétt til endurgreiðslu. Sé ofgreiðsla á grundvelli þess að umsækjandi hafi gefið upp rangar upplýsingar eða hann hafi ekki tilkynnt um breytingar á högum sínum sem hafa áhrif á rétt til styrks er heimilt að leggja dráttarvexti á upphæð endurkröfunnar. Reglur þessar verða endurskoðaðar eins oft og þurfa þykir.