Hvatastyrkur til eldri borgara til heilsueflingar og félagslegrar virkni er að hámarki kr. 75.000 á ári
REGLUR
Markmið ákvörðunar hreppsnefndar Ásahrepps um greiðslu hvatastyrkja til eldri borgara Ásahrepps, sem eru 60 ára eða eldri, er að gefa öllum jöfn tækifæri á styrkjum til heilsueflingar, tómstunda og félagslegrar virkni. Þeir hafi val um það í hvað umræddur styrkur fer. Eldri borgarar geta því notað hvatagreiðslur í að kaupa sundkort, kaupa kort í ræktina, fara í golf, velja sér tómstundir við hæfi o.s.frv. Einstaklingarnir ráða því sjálfir og við hleypum fleirum að.
Styrkurinn er fyrir eldriborgara Ásahrepps 60 ára og eldri, miðað við fæðingarár. Skilyrði er að viðkomandi aðili eigi lögheimili og séu með aðsetur í Ásahreppi. Styrkinn er hægt að nýta til niðurgreiðslu á keyptri þjónustu við heilsueflingu og félagslega virkni, s.s. íþróttatengd námskeið, sundkort, kort í ræktina, aðgengi að golfvöllum og aðra þjónustu sem lýtur að íþróttum, tómstundum og félagslegrar virkni. Meginmarkmið þessa hvatastyrksins er að auka valfrelsi, jafnrétti og fjölbreytni á sviði lýðheilsu með þátttöku eldri borgara í uppbyggilegu heilsueflandi starfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Gildi þess að taka þátt í heilsueflingu fyrir eldri borgara er ótvírætt hvað varðar líkamlega, andlega og félagslega heilsu.
Íþrótta- og tómstundastyrkurinn nemur allt að 75.000.- kr. á árinu 2025 á hvern iðkenda. Styrkur getur aldrei orðið hærri en sem nemur greiddu gjaldi fyrir aðkeyptri þjónustu sem lýtur að heilsueflingu og félagslegrar virkni. Styrkumsækjandi skal skila inn þar til gerðu umsóknareyðublaði sem nálgast má á heimasíðu Ásahrepps ásamt greiðslukvittun til skrifstofu Ásahrepps, á netfangið asahreppur@asahreppur.is eða í pósti. Á greiðslukvittun þarf að koma fram nafn/kennitala þess aðila sem þjónusta er keypt af, nafn og kennitala iðkenda, dagsetning greiðslu, hvaða þjónustu er um að ræða og tímabil.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. des, fyrir árið 2025. Verði um ofgreiðslu að ræða á styrki áskilur Ásahreppur sér rétt til endurgreiðslu. Sé ofgreiðsla á grundvelli þess að umsækjandi hafi gefið upp rangar upplýsingar eða hann hafi ekki tilkynnt um breytingar á högum sínum sem hafa áhrif á rétt til styrks er heimilt að leggja dráttarvexti á upphæð endurkröfunnar. Reglur þessar verða endurskoðaðar eins oft og þurfa þykir. Reglur þessar voru samþykktar af hreppsnefnd Ásahrepps 20. desember 2023.
Slóð inn á Suðurlíf þar sem hægt er að sjá hvað er í boði í hreyfingu: Íþróttir og tómstundir | Suðurlíf