Fara í efni

Gjaldskrá

Verðskrár flokkur

Fjölskyldusvið

Aðgangur 16 ára og eldri

1.500 kr.

Aðgangur 6 til 15 ára

500 kr.

Aðgangur aldraðir og öryrkjar

750 kr.

Styrkir

Hvatastyrkur til eldri borgara til heilsueflingar og félagslegrar virkni er að hámarki kr. 75.000 á ári


REGLUR 

Markmið ákvörðunar hreppsnefndar Ásahrepps um greiðslu hvatastyrkja til eldri borgara Ásahrepps, sem eru 60 ára eða eldri, er að gefa öllum jöfn tækifæri á styrkjum til heilsueflingar, tómstunda og félagslegrar virkni. Þeir hafi val um það í hvað umræddur styrkur fer. Eldri borgarar geta því notað hvatagreiðslur í að kaupa sundkort, kaupa kort í ræktina, fara í golf, velja sér tómstundir við hæfi o.s.frv. Einstaklingarnir ráða því sjálfir og við hleypum fleirum að. 

Styrkurinn er fyrir eldriborgara Ásahrepps 60 ára og eldri, miðað við fæðingarár. Skilyrði er að viðkomandi aðili eigi lögheimili og séu með aðsetur í Ásahreppi. Styrkinn er hægt að nýta til niðurgreiðslu á keyptri þjónustu við heilsueflingu og félagslega virkni, s.s. íþróttatengd námskeið, sundkort, kort í ræktina, aðgengi að golfvöllum og aðra þjónustu sem lýtur að íþróttum, tómstundum og félagslegrar virkni. Meginmarkmið þessa hvatastyrksins er að auka valfrelsi, jafnrétti og fjölbreytni á sviði lýðheilsu með þátttöku eldri borgara í uppbyggilegu heilsueflandi starfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Gildi þess að taka þátt í heilsueflingu fyrir eldri borgara er ótvírætt hvað varðar líkamlega, andlega og félagslega heilsu. 

Íþrótta- og tómstundastyrkurinn nemur allt að 75.000.- kr. á árinu 2025 á hvern iðkenda. Styrkur getur aldrei orðið hærri en sem nemur greiddu gjaldi fyrir aðkeyptri þjónustu sem lýtur að heilsueflingu og félagslegrar virkni. Styrkumsækjandi skal skila inn þar til gerðu umsóknareyðublaði sem nálgast má á heimasíðu Ásahrepps ásamt greiðslukvittun til skrifstofu Ásahrepps, á netfangið asahreppur@asahreppur.is eða í pósti. Á greiðslukvittun þarf að koma fram nafn/kennitala þess aðila sem þjónusta er keypt af, nafn og kennitala iðkenda, dagsetning greiðslu, hvaða þjónustu er um að ræða og tímabil. 

Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. des, fyrir árið 2025. Verði um ofgreiðslu að ræða á styrki áskilur Ásahreppur sér rétt til endurgreiðslu. Sé ofgreiðsla á grundvelli þess að umsækjandi hafi gefið upp rangar upplýsingar eða hann hafi ekki tilkynnt um breytingar á högum sínum sem hafa áhrif á rétt til styrks er heimilt að leggja dráttarvexti á upphæð endurkröfunnar. Reglur þessar verða endurskoðaðar eins oft og þurfa þykir. Reglur þessar voru samþykktar af hreppsnefnd Ásahrepps 20. desember 2023.

Slóð inn á Suðurlíf þar sem hægt er að sjá hvað er í boði í hreyfingu: Íþróttir og tómstundir | Suðurlíf

Íþrótta- og tímstundastyrkur, frá 1. janúar 2025 eru að hámarki kr. 100.000 á ári.


Þessar reglur gilda um styrkinn, frá 2025:

Styrkurinn er fyrir börn og ungmenni upp að 18 ára aldri, miðað við fæðingarár. Skilyrði er að bæði barn og foreldri eigi lögheimili og séu með aðsetur í Ásahreppi. 

Styrkinn er hægt að nýta til niðurgreiðslu á skipulögðu starfi sem er stundað undir leiðsögn viðurkenndra þjálfara eða leiðbeinanda. Þetta á við um starfsemi viðurkenndra íþróttafélaga, æskulýðsfélaga, nám við tónlistarskóla, dansskóla, myndlistarskóla og fl. Meginmarkmið tómstundastyrksins er að auka valfrelsi, jafnrétti og fjölbreytni á sviði íþrótta- og tómstunda með þátttöku barna og unglinga í uppbyggilegu frístundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. 

Gildi þess að taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga er ótvírætt hvað varðar líkamlega, andlega og félagslega heilsu. Íþrótta- og tómstundastyrkurinn nemur allt að 100.000.- kr. á árinu 2025 á hvern iðkenda. Styrkur getur aldrei orðið hærri en sem nemur æfingagjaldi viðkomandi íþrótta- eða tómstundagreinar. Styrkumsækjandi skal skila inn þar til gerðu umsóknareyðublaði sem nálgast má á heimasíðu Ásahrepps ásamt greiðslukvittun til skrifstofu Ásahrepps, á netfangið asahreppur@asahreppur.is eða í pósti. Á greiðslukvittun þarf að koma fram nafn/kennitala félags, nafn og kennitala iðkenda, dagsetning greiðslu, íþrótt/tómstund og tímabil. Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. des, fyrir árið 2025. 

Verði um ofgreiðslu að ræða á styrki áskilur Ásahreppur sér rétt til endurgreiðslu. Sé ofgreiðsla á grundvelli þess að umsækjandi hafi gefið upp rangar upplýsingar eða hann hafi ekki tilkynnt um breytingar á högum sínum sem hafa áhrif á rétt til styrks er heimilt að leggja dráttarvexti á upphæð endurkröfunnar. Reglur þessar verða endurskoðaðar eins oft og þurfa þykir.

Upphæð heimgreiðslu er að hámarki kr. 125.000 á mánuði fyrir hvert barn.


Reglur um heimgreiðslur 

Greiðslurnar eru fyrir foreldra barna á aldrinum 12 - 24 mánaða sem ekki eru í leikskóla eða hlutagreiðsla fyrir börn sem ekki eru í fullri vistun. Heimgreiðsla er bundin því að barn sé með lögheimili í Ásahreppi. Við flutning á lögheimili barnsins úr sveitarfélaginu falla heimgreiðslur niður frá og með sama degi. 

Heimgreiðsla er 100% fyrir barn sem ekki er á leikskóla. Heimgreiðsla er 50% fyrir barn sem er í 20 klst vistun á viku og 25% fyrir barn sem er í 21-30 klst vistun á viku. Heimgreiðsla fellur niður þegar vistun fer yfir 30 klst á viku. Upphæð heimgreiðslu er kr. 125.000 á mánuði fyrir hvert barn. Umsókn þarf að berast fyrir 1. dag mánaðar sem greiðslur eiga að hefjast. Heimgreiðslur eru greiddar eftirá, síðasta virka dag mánaðar. Greiðslur hefjast í fyrsta lagi þann dag sem barn hefur náð tilskildum aldri og lýkur daginn sem barn hefur náð 24 mánaða aldri eða þann dag sem leikskólaganga hefst eða fer yfir 30 klst á viku. 

Verði um ofgreiðslu að ræða á heimgreiðslum áskilur Rangárþing ytra sér rétt til endurgreiðslu. Sé ofgreiðsla á grundvelli þess að umsækjandi hafið gefið upp rangar upplýsingar eða hann hafi ekki tilkynnt um breytingar á högum sínum sem hafa áhrif á rétt til heimgreiðslu er heimilt að leggja dráttarvexti á upphæð endurkröfunnar. 

Reglur þessar taka gildi frá og með 1. janúar 2025.

Framlög

Fjárframlag vegna útivistarstíga í flokki 1 er að hámarki 1.500.000 á hvert lögheimili


Verklagsreglur við úthlutun fjárframlaga til viðhalds eða lagningu nýrra útivistarstíga í Ásahreppi 

Reglur varðandi fjárframlög til gerðar útivistarstíga: Framlög til nýlagningar og viðhalds útivistarstíga eru ávallt háð þeim fjárveitingum sem til staðar er í fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins á hverju ári. Fjárhæð fjárframlags miðast við lögheimili umsækjenda og verða þeir að hafa lögheimili í sveitarfélaginu. Fleiri en eitt lögheimili geta sameinast um eina umsókn um ákveðinn kafla stígs. Ekki er hægt að sækja um styrk nema einu sinni á ári. Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. apríl ár hvert, en ef umsókn berst eftir 10. apríl þá flyst umsóknin til næsta árs. Hægt er að nálgast þessar reglur og umsóknareyðublað á heimasíðu Ásahrepps. 

Þeir aðilar sem sækja um í fyrsta sinn hafa forgang að úthlutun. Ræður fjölda veittra vilyrða um fjárframlag röðun um úthlutun á hverjum tíma. 

Flokkur 1: Nýr útivistarstígur eða það gamall og uppgróinn að ekki er um viðhald að ræða. 

  • Hámarks fjárhæð er 1.500.000 kr miðað við 3 m breiðan útivistarstíg þar sem enginn stígur er eða það gamall að ekki sé hægt að flokka verkið sem viðhaldsverkefni.
  • Krafa er gerð um að viðkomandi stígur sé opinn almenningi. Umsóknum verður forgangsraðað eftir því sem þær berast.
  • Reiknað er með því að umsækjendur hafi samráð við verkefnastjóra um útvegun og keyrslu á efni á staðinn en muni dreifa efninu sjálfir, t.d. með sturtuvagni í stæði stígs. Útivistarstígur liggi með tengi- eða héraðsvegi.
  • Þeir aðilar sem hugsa sér framkvæmdir á útivistarstígum sæki um skriflega til hreppsnefndar sem afgreiðir umsóknirnar formlega á næsta reglubundna fundi.

Fjárframlag vegna útivistarstíga í flokki 2 er að hámarki kr 750.000 á hvert lögheimili


Verklagsreglur við úthlutun fjárframlaga til viðhalds eða lagningu nýrra útivistarstíga í Ásahreppi 

Reglur varðandi fjárframlög til gerðar útivistarstíga: Framlög til nýlagningar og viðhalds útivistarstíga eru ávallt háð þeim fjárveitingum sem til staðar er í fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins á hverju ári. Fjárhæð fjárframlags miðast við lögheimili umsækjenda og verða þeir að hafa lögheimili í sveitarfélaginu. Fleiri en eitt lögheimili geta sameinast um eina umsókn um ákveðinn kafla stígs. Ekki er hægt að sækja um styrk nema einu sinni á ári. Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. apríl ár hvert, en ef umsókn berst eftir 10. apríl þá flyst umsóknin til næsta árs. Hægt er að nálgast þessar reglur og umsóknareyðublað á heimasíðu Ásahrepps. 

Þeir aðilar sem sækja um í fyrsta sinn hafa forgang að úthlutun. Ræður fjölda veittra vilyrða um fjárframlag röðun um úthlutun á hverjum tíma. 

Flokkur 2: Viðhald núverandi útivistarstíga.

  • Ffjárframlagi að hámarki 750.000 kr miðað við 3 m breiðan stíg.
  • Krafa er gerð um að viðkomandi stígur sé opinn almenningi.
  • Umsóknum verður forgangsraðað eftir því sem þær berast.
  • Reiknað er með því að umsækjendur hafi samráð við verkefnastjóra um útvegun og keyrslu á efni á staðinn en muni dreifa efninu sjálfur, t.d. með sturtuvagni í stæði stígs. Útivistarstígur liggi með tengi- eða héraðsvegi.
  • Þeir aðilar sem hugsa sér framkvæmdir á útivistarstígum sæki um skriflega til hreppsnefndar sem afgreiðir umsóknirnar formlega á næsta reglubundna fundi.

Álagning gjalda

Álagningarprósenta útsvars

14,97%.

Fasteignaskattur:

Álagningarhlutfall - flokkur A

0,15%

Álagningarhlutfall - flokkur B

1,32%

Álagningarhlutfall - flokkur C

1,65%

Gjaldskrá kaldavatnsveitu (samkvæmt gjaldsk. Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.)

Meðhöndlunar úrgangs:

  • samkvæmt gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs fyrir sorphirðu og sorpeyðingu

Íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, Laugalandi og Þykkvabæ:

  • samkvæmt sameiginlegri gjaldskrá Rangárþing ytra og Ásahrepps.

Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa 3ja hvert ár - almennt gjald (<6000 l.)

kr. 13.500

Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa 5ja hvert ár - almennt gjald (<6000 l.)

kr. 8.500

Heimgreiðslur (að hámarki)

kr. 125.000

Íþrótta- og tómstundastyrkur (að hámarki)

kr. 100.000

Hvatastyrkur til íbúa eldri en 60 ára til íþrótta- og heilsustyrkingar (að hámarki)

kr. 75.000

Leikskólagjald:

>skv. útgefinni gjaldskrá Odda bs.<

  • afsláttur ef einstæðir foreldrar

50%

  • afsláttur ef námsmenn (annað foreldri)

25%

  • afsláttur ef námsmenn (báðir foreldrar)

50%

  • afsláttur ef öryrkjar (annað foreldri)

25%

  • afsláttur ef öryrkjar (báðir foreldrar)

50%

Mötuneytiskostnaður leik- og grunnskólabarna

  • Niðurgreiðsla Ásahrepps

100%

Sjá einnig ítarlegari upplýsingar Álagning gjalda og gjaldskrár 2026 Ásahreppur.

Annað

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Integer in purus vitae dui efficitur consectetur eget sed libero.

Header 1 Header 2

Lorem ipsum

Lorem ipsum

Lorem ipsum

Lorem ipsum

Lorem ipsum

Lorem ipsum