Fara í efni

Félags- og skólaþjónusta

Byggðasamlagið Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu sér um rekstur félags- og skólaþjónustu sveitarfélagsins.

Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu bs. er samstarfsverkefni Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps.

Félags- og skólaþjónustan er til húsa að Suðurlandsbraut 1-3, 850 Hellu. 

Sími: 487-8125.

Sjá nánar hér: http://www.felagsogskolamal.is/

Umdæmi Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu er hið víðfemasta á landinu. Það nær frá Þjórsá í vestri að Lómagnúpi í austri. Aðildarsveitarfélögin eru fimm (frá vestri til austurs): Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.

Í hverju sveitarfélagi eru leikskóli og grunnskóli: Að Laugalandi í Holtum, á Hellu og Hvolsvelli, í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarklaustri.

Fjórar fræðslunefndir eru starfræktar á svæðinu: Oddi bs. er fyrir skólastarf í Ásahreppi og Rangárþingi ytra og svo ein í hverju hinna sveitarfélaganna.

Starfsmenn skólaþjónustu

Svava Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu - svava@felagsmal.is 
Halldóra Guðlaug Helgadóttir, teyisstjóri skólaþjónustu - halldora@skolamal.is 
Nanna Fanney Björnsdóttir, ritari - ritari@skolamal.is 
Sigríður Arndís Þórðardóttir, talmeinafræðingur - sigridurtal@gmail.com 
Sigurlaug Hauksdóttir, kennsluráðgjafi - sigurlaug@skolamal.is 
Bergrún Ísleifsdóttir, leikskólaráðgjafi - bergrun@skolamal.is
Sálfræðiteymi - skolamal@skolamal.is 

Reglurammi

Skólaþjónusta sveitarfélaga almennt er bundin í reglugerð um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 444/2019. Reglugerðin á stoð í 21. og 22. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og 40. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008, með síðari breytingum. 

Um þjónustu ráðgjafa og sérfræðinga hjá skólaþjónustum gilda einnig lög sem vernda starfsheiti þeirra. Aðrar ákvarðanir, fyrirmæli og reglur ríkis og sveitarfélaganna er varða skólaþjónustu gilda einnig um Skólaþjónustuna.

Starfsemi skólaþjónustunnar

Um starfsemi Skólaþjónustunnar gildir reglugerð um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 444/2019. Skólaþjónustan leggur áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir með starfsemi sinni. Það felur í sér að starfsfólk veiti nemendum, skólum og foreldrum (ó)formlega fræðslu, ráðgjöf og leiðsögn um það sem fellur undir hlutverk Skólaþjónustunnar. Stuðningur við skóla felst einnig í ráðgjöf, stuðningi og leiðsögn vegna starfshátta og starfsumhverfis og nýbreytni- og þróunarstarfa. Tilgangurinn er að styðja og efla aðila til sjálfbærni um lausnir á flestum viðfangsefnum og styrkja skóla sem faglegar stofnanir.

Þroski, líkamlegur, sálrænn eða félagslegur vandi, sem hefur áhrif á námsframvindu einstakra nemenda, getur þarfnast aðkomu Skólaþjónustunnar eingöngu. Hægt er að óska formlegrar greiningar á námsaðstæðum og nemendum. Í framhaldi leggur Skólaþjónustan til úrræði. Málum er fylgt eftir og metið hvort úrræði bera þann árangur sem stefnt er að. Stundum er þörf á þverfaglegu samstarfi stoðþjónusta, sbr. reglugerð.

Byggðasamlag um félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu tók til starfa árið 2003. Að byggðasamlaginu standa Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur, en sá síðastnefndi gekk að fullu í samlagið um áramótin 2005-2006.

Í stjórn byggðasamlagsins sitja 5 fulltrúar, einn frá hverju sveitarfélagi sem aðild á að því.

Starfsmenn félagsþjónustunnar eru:

Svava Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu - svava@félagsmal.is
Aðalheiður K. Steinadóttir, deildastjóri í málaflokki aldraðra - adalheidur@felagsmal.is
Brynhildur Ásta Harðardóttir, félagsráðgjafi í barnaverndarþjónustu, farsældarþjónustu og félagslegri ráðgjöf - brynhildur@felagsmal.is
Helga Þóra Steinsdóttir, ráðgjafi í húsnæðismálum, fjárhagsaðstoð og farsældarþjónustu - helgath@felagsmál.is 
Inga Jara Jónsdóttir, teymisstjóri barnaverndar og farsældarþjónustu - inga@felagsmal.is
María Guðrún Arnardóttir, félagsráðgjafi í barnaverndarþjónustu, farsældarþjónustu og félagslegri ráðgjöf - maria@felagsmal.is 
Nanna Fanney Björnsdóttir, ritari - ritari@felagsmal.is
Petrina Freyja Sigurðardóttir, ráðgjafi í málefnum fólks með fötlun 18 ára og eldri - petrina@felagsmal.is 
Þóra Sumarlín Jónsdóttir, ráðgjafi í málefnum barna með fötlun og farsældarþjónustu - thora@felagsmal.is
 

Svava Davíðsdóttir
Framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu