Fjárframlag vegna útivistarstíga í flokki 1 er að hámarki 1.500.000 á hvert lögheimili
Verklagsreglur við úthlutun fjárframlaga til viðhalds eða lagningu nýrra útivistarstíga í Ásahreppi
Reglur varðandi fjárframlög til gerðar útivistarstíga: Framlög til nýlagningar og viðhalds útivistarstíga eru ávallt háð þeim fjárveitingum sem til staðar er í fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins á hverju ári. Fjárhæð fjárframlags miðast við lögheimili umsækjenda og verða þeir að hafa lögheimili í sveitarfélaginu. Fleiri en eitt lögheimili geta sameinast um eina umsókn um ákveðinn kafla stígs. Ekki er hægt að sækja um styrk nema einu sinni á ári. Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. apríl ár hvert, en ef umsókn berst eftir 10. apríl þá flyst umsóknin til næsta árs. Hægt er að nálgast þessar reglur og umsóknareyðublað á heimasíðu Ásahrepps.
Þeir aðilar sem sækja um í fyrsta sinn hafa forgang að úthlutun. Ræður fjölda veittra vilyrða um fjárframlag röðun um úthlutun á hverjum tíma.
Flokkur 1: Nýr útivistarstígur eða það gamall og uppgróinn að ekki er um viðhald að ræða.
- Hámarks fjárhæð er 1.500.000 kr miðað við 3 m breiðan útivistarstíg þar sem enginn stígur er eða það gamall að ekki sé hægt að flokka verkið sem viðhaldsverkefni.
- Krafa er gerð um að viðkomandi stígur sé opinn almenningi. Umsóknum verður forgangsraðað eftir því sem þær berast.
- Reiknað er með því að umsækjendur hafi samráð við verkefnastjóra um útvegun og keyrslu á efni á staðinn en muni dreifa efninu sjálfir, t.d. með sturtuvagni í stæði stígs. Útivistarstígur liggi með tengi- eða héraðsvegi.
- Þeir aðilar sem hugsa sér framkvæmdir á útivistarstígum sæki um skriflega til hreppsnefndar sem afgreiðir umsóknirnar formlega á næsta reglubundna fundi.