Fara í efni

Heimgreiðsla

Fyllið út fromið og sendið inn umsókn um styrkinn

Umsókn um Heimgreiðslu

Upplýsingar um barn
Upplýsingar um foreldri/forráðamann
Tímabil sem sótt er um
Frá og með
Til og með
Greiðsla leggist inn á reikning 
BankiHbReikningur

Reglur um styrkinn:

Upphæð heimgreiðslu er að hámarki kr. 125.000 á mánuði fyrir hvert barn.


Reglur um heimgreiðslur 

Greiðslurnar eru fyrir foreldra barna á aldrinum 12 - 24 mánaða sem ekki eru í leikskóla eða hlutagreiðsla fyrir börn sem ekki eru í fullri vistun. Heimgreiðsla er bundin því að barn sé með lögheimili í Ásahreppi. Við flutning á lögheimili barnsins úr sveitarfélaginu falla heimgreiðslur niður frá og með sama degi. 

Heimgreiðsla er 100% fyrir barn sem ekki er á leikskóla. Heimgreiðsla er 50% fyrir barn sem er í 20 klst vistun á viku og 25% fyrir barn sem er í 21-30 klst vistun á viku. Heimgreiðsla fellur niður þegar vistun fer yfir 30 klst á viku. Upphæð heimgreiðslu er kr. 125.000 á mánuði fyrir hvert barn. Umsókn þarf að berast fyrir 1. dag mánaðar sem greiðslur eiga að hefjast. Heimgreiðslur eru greiddar eftirá, síðasta virka dag mánaðar. Greiðslur hefjast í fyrsta lagi þann dag sem barn hefur náð tilskildum aldri og lýkur daginn sem barn hefur náð 24 mánaða aldri eða þann dag sem leikskólaganga hefst eða fer yfir 30 klst á viku. 

Verði um ofgreiðslu að ræða á heimgreiðslum áskilur Rangárþing ytra sér rétt til endurgreiðslu. Sé ofgreiðsla á grundvelli þess að umsækjandi hafið gefið upp rangar upplýsingar eða hann hafi ekki tilkynnt um breytingar á högum sínum sem hafa áhrif á rétt til heimgreiðslu er heimilt að leggja dráttarvexti á upphæð endurkröfunnar. 

Reglur þessar taka gildi frá og með 1. janúar 2025.