Fara í efni
18.06.2025

Áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála.

Deildu

Innviðaráðuneytið tilkynnti þann 14. maí s.l. að innviðaráðherra hyggst leggja fram frumvörp í hausts, þá annars vegar frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannirkja) og hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum.  Áform þessi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

Hreppsnefnd Ásahrepps hefur verið að vinna að umsögn um þau áform sem birt hafa verið.  Það er ánægjulegt að stigið hafi verið þetta skref, enda er hér um að ræða áralangt baráttumál sveitarfélaga.  Nákvæm útfærsla liggur ekki fyrir en mun málið skýrast með framlagningu þessara frumvarpa á næsta haustþingi.

Slóðin á samráðsgátt stjórnvalda er: Samráðsgátt | Mál: S-89/2025