Fara í efni
21.05.2025

Fréttapunktar af vettvangi Ásahrepps

Deildu

Ársreikningur Ásahrepps 2024.

Á  fundi hreppsnefndar Ásahrepps, sem haldinn var 7. maí s.l.,  var ársreikningur Ásahrepps fyrir rekstrarárið 2024 lagður fram til síðari umræðu og staðfestur.  Helstu lykiltölur samstæðureiknings eru í þúsundum króna:

REKSTRARREIKNINGUR:
Rekstrartekjur: 697.992
Rekstrargjöld: -507.879
Afskriftir: -23.113
Fjármagnsgjöld: 7.302
Rekstrarniðurstaða jákvæð: 174.302

EFNAHAGSREIKNINGUR:
Fastafjármunir: 492.546
Veltufjármunir: 463.936
Eignir samtals: 956.482

Eigið fé: 786.128
Skuldbindingar: 7.211
Langtímaskuldir: 81.877
Skammtímaskuldir: 81.266
Eigið fé og skuldir samtals: 956.482

Handbært fé í árslok: 331.041

HELSTU LYKILTÖLUR:
Veltufjárhlutfall: 5,71
Eiginfjárhlutfall: 82,2%
Skuldahlutfall: 24,4%
Jafnvægisregla - rekstrarjöfnuður: 227.470

Rekstur Ásahrepps gekk vel á síðasta ári og eru allar lykiltölur sem staðfestir góða og sterka rekstarstöðu sveitarfélagsins.

 

Samningur við Landsnet um efnisnám á Holtamannaafrétti.

Ásahreppsur og Landsnet hafa undirritað samning við Landsnet um efnisnám á Holtamannaafrétti.  Um er að ræða samhljóða samkomulag og gert hafði verið við Landsvirkjun fyrr á þessu ári.  Nú í sumar hyggst Landsnet fara í efnistöku á svæðinu en efnið verður nýtt til til fylla undir og að undirstöðum nýs tengivirkishúss ásamt fyllingu í plön á lóð Landsnets við Sigöldu.