Leikskólastjóri er leiðtogi skólans, veitir faglega forystu og býr yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri, þjónustu og starfsemi skólans
Fagleg forysta á sviði kennslu og skólaþróunar
Ábyrgð á mannauðsmálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
Að leikskólinn starfi samkvæmt viðeigandi lögum og reglugerðum, aðalnámskrá leikskóla og menntastefnu sveitarfélagsins
Virkt og gott samstarf við alla aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
Kennaramenntun og leyfisbréf er skilyrði
Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar og/eða menntunarfræða er æskileg
Kennslureynsla á leikskólastigi er skilyrði
Leiðtoga- og stjórnunarhæfni, reynsla af stjórnun er æskileg
Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót
Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun er æskileg
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi, skýr framtíðarsýn og faglegur metnaður
Góð almenn tölvunotkun
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2025
Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is
Með umsókn skal fylgja greinagóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfi umsækjenda.
Leikskólinn Laugalandi er um 45 barna þriggja deilda leikskóli staðsettur að Laugalandi, rekinn af Rangárþingi ytra og Ásahreppi.
Umhverfi skólans einkennist af fjölbreyttri íslenskri náttúru sem býður uppá endalausa möguleika fyrir leik og nám.
Helstu áherslur í starfi eru m.a. traust og góð umönnun og vellíðan barnanna á allan hátt. Leikur, útikennsla, slökun og fjölbreyttar vinnustundir m.a. með Lubba og Blæ.
Mikil og góð samvinna er við grunnskólann og íþróttamiðstöðina sem eru undir sama þaki og leikskólinn.
Einkunarorð skólans eru: Viska - Virðing - Vinátta.
