Tilkynning kjörstjórnar Ásahrepps
Þar sem enginn framboð bárust fyrir klukkan 12:00 þann 10. apríl 2026 fara fram óbundnar kosningar í sveitarfélaginu í samræmi við 49. gr. Kosningalaga nr. 112/2021.
Fyrir lok framboðsfrests bárust erindi frá tveimur einstaklingum sem skorast undan endurkjöri í samræmi við 49. gr. Kosningalaga nr. 112/2021.
Eftirtaldir aðilar uppfylla skilyrði um að skorast undan endurkjöri:
Nanna Jónsdóttir, Miðhóli
Þráinn Ingólfsson, Lækjartúni 2
Kjörfundur fer fram í Miðgarði á Laugalandi þann 16. maí 2026 og stendur frá 10:00-18:00
Fyrir hönd kjörstjórnar Ásahrepps
Kristín Ósk Ómarsdóttir, formaður kjörstjórnar
