Vilt þú eiga þátt í mótun og innleiðingu farsældar barna?
Langi þig að vinna í lifandi umhverfi að mikilvægum og fjölbreyttum verkefnum sem auka lífsgæði í samfélaginu á Suðurlandi, þá er þetta starfið fyrir þig.
Við leitum að jákvæðum og skipulögðum verkefnisstjóra sem á auðvelt með samskipti við ólíka aðila.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) auglýsa eftir verkefnisstjóra farsældarráðs. Markmið verkefnisins er að koma á farsældarráði á Suðurlandi í þágu farsældar barna. Verkefnið byggir á samningi milli SASS og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Um fullt starf er að ræða og er ráðningin tímabundin til tveggja ára.
Helstu verkefni og ábyrgð
Virkt samráð við sveitarfélögin og starfsfólk sem bera ábyrgð á innleiðingu farsældar
Virkt samráð við svæðisbundna þjónustuveitendur á vegum ríkis og sveitarfélaga
Ná yfirsýn yfir þjónustu við börn í hverju sveitarfélagi með kortlagningu
Mótun aðgerða, verkferla, tíma- og verkáætlana með það að markmiði að koma á svæðisbundnu farsældarráði
Stuðla að því að fyrir lok tímabilsins hafi farsældarráð hafið störf og unnið fyrstu áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna til fjögurra ára
Umsjón með verkframvindu, fundum og öðrum störfum farsældarráðs
Taka þátt í mótun tengslanets farsældarmála milli landshlutasamtaka sveitarfélaga og annað sem fellur að tilgangi verkefnisins
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Framhaldsnám og/eða starfsreynsla í verkefnisstjórnun og teymisvinnu kostur
Farsæl reynsla og þekking á velferð barna
Reynsla innan stjórnsýslu sveitarfélaga eða ríkis er kostur
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun
Hæfni í mannlegum samskiptum
Starfsstöð er óháð staðsetningu á Suðurlandi. Nánari upplýsingar veitir formaður stjórnar SASS, Anton Kári Halldórsson, anton@hvolsvollur.is
Umsækjendur sendi kynningarbréf og starfsferilsskrá í gegnum ráðningarvefinn, alfred.is
Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2025.