Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

48. fundur
21. janúar 2026 kl. 08:30 - 11:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 316. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2601001
Mál nr. 1; Þjórsártún L165323; Gerð vegslóða og plan við Þjórsárbrú; Framkvæmdarleyfi - 2512049.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Þjórsárbrúar í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst gerð vegslóða og plans austan við Þjórsárbrú. Vegslóðinn
mun liggja frá þjóðvegi nr. 1 (Hringvegur) austan við Þjórsárbrú og undir brúna að fyrirhuguð plani. Framkvæmdinni verður að mestu haldið innan veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar. Hluti af vegslóða liggur í gegnum land Þjórsártúns.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis, á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.2010, með fyrirvara um að skriflegt samþykki landeiganda Þjórsártúns mun liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast.

Mál nr. 16; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-240 - 2512003F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-240 lögð fram til kynningar.
2.
Fundargerð 317. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2601011
Mál nr. 18; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 2601001F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-2026 lögð fram til kynningar.
3.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 10
Málsnúmer 2512003F
Lögð fram fundargerð 10. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar.
4.
Fundargerð 132. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2601002
Til kynningar.
5.
Fundargerð 45. fundar stjórnar Odda bs
Málsnúmer 2601009
Til kynningar.
6.
Fundargerð 252. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2601008
Til kynningar.
7.
Fundargerð 341. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2601003
Til kynningar.
8.
Fundargerð 342. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2601004
Til kynningar.
9.
Útivistarstígar í Ásahreppi
Málsnúmer 2504018
Endurskoðun verklagsreglna er í gangi og ekki verða umsóknir teknar til afgreiðslu fyrr en endurskoðun verklagsreglana er lokið. Stefnt er að því að endurskoðun verði lokið og afgreidd á febrúarfundi hreppsnefndar.
10.
Tillaga að barnamenningardögum á Suðurlandi
Málsnúmer 2601006
Hreppsnefnd Ásahrepps líst vel á hugmyndina. Sveitarstjóri hefur rætt aðkomu Ásahrepps í samstarfi við Rangárþing ytra í tengslum við starf Jóhanns G. Jóhannssonar sem er sameiginlegur starfsmaður sveitarfélaganna.
11.
Nýidalur, lóð innan þjóðlendu
Málsnúmer 2601007
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að senda forsætisráðuneytinu beiðni um stofnun lóðarinnar og gerð grunnsamkomulags um lóðina.
Jafnframt er sveitarstjóra falið að ræða við fulltrúa forsætisráðuneytis um framhald málsins.
12.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
13.
Breyting á reglugerð 1212-2015, um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga
14.
Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033
Málsnúmer 2601010
Til kynningar.
15.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.