Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

49. fundur
18. febrúar 2026 kl. 08:30 - 10:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 318. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2602012
Mál nr. 1; Ás 3 1-8lóð L204637; Skilgreining frístundalóðar; Deiliskipulag - 2508021.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags, eftir auglýsingu, sem tekur til Áss 3 I-8 lóð L204637 í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindur er byggingarreitur á lóðinni þar sem heimilt er að reisa allt að 200 fm frístundahús, 40 fm gestahús og 25 fm geymslu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 2; Bergholt L238505; Íbúðarhús, gestahús og hesthús; Deiliskipulag - 2503060.
Lögð er fram, eftir auglýsingu og afgreiðslu Skipulagsstofnunar, tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Bergholts L238505 í Ásahreppi. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði og þar verður heimilt að byggja íbúðarhús, gestahús og hesthús/reiðhöll. Athugasemdir bárust frá Skipulagsstofnun og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum og undanþágu frá ákvæði d-liðar 5.3.2.5 gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 um fjarlægð byggingar frá stofn- og tengivegum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 20; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 26-242 - 2601003F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 26-242.
2.
Fundargerð 319. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2602014
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
3.
Fundargerð 113. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2602013
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillögu og bókun stjórnar UTU.

Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
4.
Fundargerð 89. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2602007
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Brunavarna Rangárvallasýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 45.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan er í formi langtímaláns í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Hreppsnefnd hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til fjármögnunar á nýjum dælubíl Brunavarna Rangárvallasýslu bs. sem staðsettur verður í slökkvistöðinni á Hellu. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Hreppsnefnd Ásahrepps skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Brunavarna Rangárvallasýslu bs til að selja ekki eignarhlut sinn til einkaaðila, í heild eða að hluta, fyrr en lánið hefur verið að fullu greitt.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Valtý Valtýssyni, sveitarstjóra, kt. 221060-2379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Ásahrepps, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
5.
Fundargerð 9. fundar Héraðsnefndar Rangæinga
Málsnúmer 2602015
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti breytingu á hluta 10. gr. stofnsamnings er varðar m.a. ársreikning og endurskoðanda, eins og fram kemur í bókun Héraðsnefndar.
6.
Fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands, 16. janúar 2026
Málsnúmer 2602004
Dagskrárliður 5.a. - Tillögur að breytingum á samþykktum.
Tekinn er sérstaklega fyrir liður 5.a. í fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands frá 16. janúar 2026 um tillögur að breytingu á samþykktum Sorpstöðvarinnar.

Lagðar eru fram til fyrri umræðu breytingar á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs. ásamt fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvarinnar frá 16. janúar 2026. Lagt er til að sveitarstjórn samþykki að vísa fyrirliggjandi tillögu að breytingum á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs. til seinni umræðu.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa þessum tillögum að breytingum til seinni umræðu á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar.

Dagskrárliður 5.c. - Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Tekinn er sérstaklega fyrir liður 5.c. í fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands frá 16. janúar 2026 um viðauka við fjárhagsáætlun Sorpstöðvarinnar.

Lagður er fram til samþykktar viðauki við fjárhagsáætlun Sorpstöðvar Suðurlands bs. ásamt fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvarinnar frá 16. janúar 2026. Lagt er til að sveitarstjórn samþykki viðaukann.

Ekki er gert ráð fyrir auknum framlögum aðildarsveitarfélaga SOS vegna viðaukans.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagðan viðauka fyrir sitt leyti.

Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar.
7.
Fundargerð 46. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2602018
Til kynningar.
8.
Fundargerð 253. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2602008
Til kynningar.
9.
Fundargerð 96. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu (FSRV)
10.
Fundargerð 343. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2602005
Vísað er til afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps varðandi fundargerð aukaaðalfundar SOS sem haldinn var 16. janúar 2026.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 251. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2602010
Til kynningar.
12.
Fundargerð 25. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Málsnúmer 2602019
Til kynningar.
13.
Fundargerð 91. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2602021
Til kynningar.
14.
Fundargerð 631. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2602002
Til kynningar.
15.
Fundargerð 632. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2602003
Til kynningar.
16.
Fundargerð 991. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2602001
Til kynningar.
17.
Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2602011
Til kynningar.
18.
Farsældarráð Suðurlands, tilnefning Ásahrepps í ráðið
Málsnúmer 2602006
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að tilnefna Kristínu Hreinsdóttur sem aðalmann og Helgu B. Helgadóttur sem varamann sem fulltrúa Ásahrepps í farsældarráð Suðurlands.
19.
Styrkbeiðni frá Suðurlandsdeild í hestaíþróttum 2026
Málsnúmer 2602016
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 60.000.
20.
Styrkbeiðni vegna útgáfu Ársrits Sambands sunnlenskra kvenna
Málsnúmer 2602020
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið að upphæð kr. 5.000.
21.
Útivistarstígar í Ásahreppi
Málsnúmer 2504018
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fjárfesting í stofnstígum verði í forgangi gagnvart öðrum umsóknum um fjárframlög við útivistarstígagerð.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlögð drög að endurskoðuðum verklagsreglum og sveitarstjóra falið að ganga frá smávægilegum breytingum í samræmi við umræður á fundinum. Sveitarstjóra falið að birta síðan verklagsreglur á heimasíðu Ásahrepps.
22.
Starfsmannamál
Málsnúmer 2511032
Lagðar fram umsóknir og voru þær ræddar. Oddvita og sveitarstjóra falið að ganga frá ráðningu skrifstofustjóra í samráði við Mögnun ráðningarstofu.
23.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
24.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 23. - 25. september 2026
Málsnúmer 2602017
Til kynningar.
25.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.