Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

50. fundur
18. mars 2026 kl. 08:30 - 11:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Fulltrúar Íslenskrar Gagnavinnslu mæta á fund hreppsnefndar
Málsnúmer 2603002
Hreppsnefnd Ásahrepps átti gott samtal við fulltrúa Íslenskra Gagnavinnslu. Þær gerðu grein fyrir afstöðu sinni til landnýtingar.
2.
Fundargerð 320. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2603019
Mál 1.
Lindarbær 1A L165304; Sólarsellur 8 kW; Framkvæmdarleyfi - 2602060.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Lindarbæjar 1A, L165304, í Ásahrepp. Í framkvæmdinni felst uppsetning sólarsella til eigin afnota, neðarlega við svokallaða Horbrún. Orkuvinnsla er 8 kW og flatarmál 300 fermetrar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu úr grenndarkynningu.

Mál 2.
Ferjufit, breyting efnismagn; Nr. 1556-2025; Umsagnarbeiðni - 2511056
Lögð er fram til umsagnar breyting á aðalskipulagi Rangárþings Ytra 2016-2028. Breytingin nær til efnistökusvæðis E122 við Ferjufit (L238022). Svæðið stækkar og heimiluð efnistaka eykst úr 10.000 m³ í allt að 120.000 m³.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við breytingar á aðalskipulagi Rangárþings Ytra 2016-2028. Breytingin nær til efnistökusvæðis E122 við Ferjufit (L238022). Svæðið stækkar og heimiluð efnistaka eykst úr 10.000 m³ í allt að 120.000 m³.

Mál nr. 22. Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 26-244 - 2602001F
3.
Fundargerð 321. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2603023
Til kynningar.
4.
Fundargerð 47. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2603013
Til kynningar
5.
Fundargerð 97. Stjórnarfundar í félags- og skólaþjónustu.
Málsnúmer 2603010
Til kynningar.
6.
Fundargerð 252. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2603009
Til kynningar
7.
Fundargerð 633. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2603001
Til kynningar.
8.
Fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2603006
Til kynningar
9.
Fundargerð 89. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2603007
Til kynningar
10.
Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2603003
Til kynningar.
11.
Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2603016
Til kynningar.
12.
Ársreikningur Ásaljóss fyrir rekstrarárið 2025
Málsnúmer 2603024
Sveitarstjóri fór yfir ársreikning og skýrði ýmsa liði. Einnig lagt fram staðfestingarbréf stjórnenda sem sveitarstjóri undirritar.
Helstu lykiltölur ársreiknings eru (í þús. kr.):

Rekstrartekjur: 8.342
Rekstrargjöld: 2.409
Afskriftir: -3.811
Fjármagnstekjur: 12
Rekstrarniðurstaða jákvæð: 2.134

Eignir samtals: 76.491
Eigið fé: 75.683
Skammtímaskuldir: 808
Skuldir og eigið fé: 76.491

Handbært fé í árslok: 13.456

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning Ásaljóss fyrir rekstrarárið 2025 og áritar hann ásamt sveitarstjóra.
13.
Skilgreining landeignarinnar Safamýrar
Málsnúmer 2603022
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillögu Landnota að lausn málsins.
14.
Útivistarstígar í Ásahreppi
Málsnúmer 2504018
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að setja upp í samráði við lögmann drög að samkomulagi við landeigendur, um legu vegstæðis fyrir útivistarstíga og hvernig þeir verða færðir inn í skipulag.
15.
Styrkveiting til lagningar útivistarstíga í Ásahreppi
Málsnúmer 2510003
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að færa verkefnið yfir á árið 2026.
16.
Grunnsamkomulag um afnotarétt í þjóðlendu vegna skálasvæðisins í Nýjadal
Málsnúmer 2603020
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða grunnsamkomulagið fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að undirrita samkomulagið fyrir hönd Ásahrepps og láta þinglýsa því.

Jafnframt felur sveitarstjórn sveitarstjóra og skrifstofustjóra að undirbúa auglýsingu þessara lóða á almennum markaðið eins og fram kemur í 7. greins samkomulagsins í samstarfi við forsætisráðuneytið.
17.
Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja
Málsnúmer 2603005
Hreppsnefnd staðfestir samþykki sitt fyrir innsendri umsögn Ásahrepps um frumvarpsdrögin.
18.
Árbakkinn - sólstöðuhátíð, beiðni um stuðning.
Málsnúmer 2603014
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 100 þúsund krónur.
19.
Rangárþing ytra, uppfærsla á borð- og þjónustukortum, boð um þátttöku
Málsnúmer 2603015
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið og óskar eftir frekari upplýsingum um kostnað og tímaramma.
20.
Síðari umræða um breytingar á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2603004
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi breytingu á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs fyrir sitt leyti.
21.
Landsvirkjun. Vinnustofa vegna flutninga á vindmyllum fyrir Vaðölduver.
Málsnúmer 2603017
Hreppsnefnd Ásahrepps stefnir að því að fjórir fulltrúar mæti á fundinn.
22.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
23.
Skýrsla Æskulýðsnefndar Geysis fyrir árið 2025,
Málsnúmer 2603012
Til kynningar.
24.
Hreysiskvísl - neyðarskýli
Málsnúmer 2603018
Til kynningar.
25.
Ársfundur Heilbrigðisstofunar Suðurlands 2026
Málsnúmer 2603021
Til kynningar.
26.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.