Fara í efni

Fréttir

22.02.2021

Guðsþjónusta í Kálfholtskrikju

Nú messum við.
17.02.2021

Skrifstofa Ásahrepps lokuð fyrir almenningi vegna COVID-19

Skrifstofa Ásahrepps er lokuð almenningi frá og með 17. febrúar 2021, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 38. fundi sínum.
16.02.2021

Áríðandi tilkynning frá Vatnsveitu Ásahrepps og Rangárþings ytra

Eftir langvarandi frostatíð er mjög mikilvægt að hugað sé að vatnslögnum í beitarhólfum og við sumarhús.
16.02.2021

Bokashi tilraunaverkefni Jarðgerðarfélagsins og Sorpstöðvar Rangæinga

Sumarið 2020 hófu Jarðgerðarfélagið í samstarfi með Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. og Landgræðsluna tilraunaverkefni á Strönd til að meta nýtni bokashi-jarðgerðar til meðhöndlunar á lífrænum heimilisúrgangi í Rangárvallasýslu. Bokashi er jarðgerðaraðferð sem felst í að gerja lífræn hráefni við loftfirrtar aðstæður og þar með losnar minna koldíoxíð en við hefðbundna jarðgerð sem fer fram við loftaðar aðstæður. Einnig er öll vinnsla og meðhöndlun úrgangsins einfaldari en við hefðbundna moltugerð. Í grunninn má segja að bokashi aðferðin sé líkust því að búa til súrkál, en bara fyrir jörðina! Stóra markmiðið er að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og hámarka nýtni næringarefna í heimilisúrganginum, því afurðin nýtist vel sem áburður. 
16.02.2021

Íþrótta- og tómstundastyrkur

Foreldrar eru hvattir til að athuga rétt sinn inn á island.is ef niðurstaða reynist jákvæð senda þá inn umsókn ásamt fylgigögnum til Félagsþjónustu Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu. Við minnum á að umsóknarfrestur er til 1.mars 2021.  Miða skal við að íþrótta- og tómstundaiðkunin fari fram á skólaárinu 2020-2021.
12.02.2021

38. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

38. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn í fjarfundarkerfi Zoom miðvikudaginn 17. febrúar 2021.  Fundurinn hefst kl. 8:30.
10.02.2021

Æskulýðssjóður

Opið er fyrir styrkumsóknir til Æskulýðssjóðs.
10.02.2021

Nýsköpunarsjóður námsmanna

Opið er fyrir styrkumsóknir til Nýsköpunarsjóðs námsmanna.  
27.01.2021

Starf laust til umsóknar hjá félagsþjónustunni

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf deildastjóra í barnavernd. Um er að ræða 80 % starfshlutfall til eins árs með möguleika á framlengingu. Næsti yfirmaður er félagsmálastjóri. Félagsþjónusta Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu er byggðasamlag sem annast félagsþjónustu fyrir 5 sveitarfélög Ásahrepp, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshrepp og Skaftárhrepp. Skrifstofur félagsþjónustunnar eru staðsettar á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b.  5.300 manns. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands.
27.01.2021

Skipulagsauglýsing UTU 27. janúar 2021

Til að sjá auglýsingu þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan:
20.01.2021

Skrifstofa Ásahrepps lokuð fyrir almenningi vegna COVID-19

Skrifstofa Ásahrepps er lokuð almenningi frá og með 20. janúar 2021, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 37. fundi sínum.
18.01.2021

Breytingar á hirðudögum, tilkynning frá Sorpstöð Rang.

Vegna viðhalds sorpbifreiðar verður losun plasts og lífræns úrgangs í Eyjafjöllum síðla dags á morgun þriðjudag í stað miðvikudags. Bæir vestan Rauðalækjar, við Fosshólahring, í hluta Ásahrepps, við Heiðarveg og Hagabraut (gult á sorphirðudagatali) verða losaðir á miðvikudag í stað fimmtudags.
15.01.2021

37. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

37. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn í fjarfundarkerfi Zoom miðvikudaginn 20. janúar 2021.  Fundurinn hefst kl. 8:30.
17.12.2020

Staða aðstoðarleikskólastjóra - deildarstjóra laus til umsóknar

Í Leikskólann Laugalandi vantar okkur:
12.12.2020

36. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

36. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn í fjarfundarkerfi Zoom miðvikudaginn 16. desember 2020.  Fundurinn hefst kl. 8:30.
08.12.2020

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður sunnudaginn 13. desember n.k frá kl. 12-15 í Bolholtsskógi á Rangárvöllum. Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré.  Eingöngu verður í boði að höggva stafafuru á staðnum.  Við verðum auk þess með á plani tilhöggið greni og furu. Við bendum á að hægt er að kaupa greinar til skreytinga, bæði greni og furu. Afgreiðsla á greinunum er hjá Rafverkstæði Ragnars í Hvolsvelli á meðan birgðir endast og eins verða greinar í Bolholtsskógi á söludag. Þessar greinar eru tilvaldar til útiskreytinga.  Vakin er athygli á því að félagar í Skógræktarfélagi Rangæinga fá greinarnar ókeypis. Nú erum við einnig með takmarkað magn af hnausplöntum til sölu sem hægt er að hafa hvort heldur sem er inni eða úti.
07.12.2020

Skrifstofa Ásahrepps lokuð fyrir almenningi vegna COVID-19

Skrifstofa Ásahrepps er lokuð almenningi frá og með 7. desember 2020, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 35. fundi sínum.
04.12.2020

35. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

35. fundur (aukafundur) hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn í fjarfundakerfi Zoom, mánudaginn 7.desember 2020 klukkan 8:30.
23.11.2020

Opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk vegna áhrifa COVID-19

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og frístundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi.
18.11.2020

34. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

34. fundur hreppsnefndar Ásahrepps er haldinn miðvikudaginn 18.nóvember 2020 kl. 8:30 í fjarfundarkerfi Zoom.
18.11.2020

Skipulagsauglýsing UTU 18. nóvember 2020

Til að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan:
16.11.2020

Jólagjöfin í ár er sunnlensk upplifun

Síðustu mánuðir hafa verið takmarkandi fyrir alla og mikil uppsöfnuð þörf komin hjá mörgum að merkja skemmtilega upplifun í dagatalið sitt og hafa eitthvað til að hlakka til. Markaðsstofa Suðurlands mælir með Suðrænni upplifun í jólapakkann í ár.
09.11.2020

Tilkynning frá félagsþjónustunni

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu veitir einstaklingum og fjölskyldum fjölbreytta þjónustu svo sem félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, félagslega heimaþjónustu, stuðningsþjónustu og stuðning vegna húsnæðisvanda. Félagsleg ráðgjöf felur annars vegar í sér upplýsingagjöf og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál og hins vegar stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda.
05.11.2020

Skrifstofa Ásahrepps lokuð fyrir almenningi vegna COVID

Skrifstofa Ásahrepps er lokuð almenningi frá og með 5. nóvember 2020, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 33. fundi sínum.
01.11.2020

Starfsdagur í grunnskólum Odda bs. á morgun

Stjórn Odda bs. hefur ákveðið í samráði við stjórnendur grunnskólanna í sveitarfélaginu, Grunnskólann Hellu og Laugalandsskóla að það verði starfsdagur í báðum skólunum á morgun, mánudag. Það er gert til að tryggja stjórnendum og öðru starfsfólki skólanna svigrúm til að skipuleggja skólastarfið í samræmi við reglugerð stjórnvalda um hertar sóttvarnaraðgerðir í grunnskólum landsins sem tekur gildi miðvikudaginn 4. nóvember nk. Rétt er að ítreka að leikskólarnir taka á móti börnum í fyrramálið eins og vanalega.
01.11.2020

Starfsdagur í grunnskólum Odda bs. á morgun

Stjórn Odda bs. hefur ákveðið í samráði við stjórnendur grunnskólanna í sveitarfélaginu, Grunnskólann Hellu og Laugalandsskóla að það verði starfsdagur í báðum skólunum á morgun, mánudag. Það er gert til að tryggja stjórnendum og öðru starfsfólki skólanna svigrúm til að skipuleggja skólastarfið í samræmi við reglugerð stjórnvalda um hertar sóttvarnaraðgerðir í grunnskólum landsins sem tekur gildi miðvikudaginn 4. nóvember nk. Rétt er að ítreka að leikskólarnir taka á móti börnum í fyrramálið eins og vanalega.
30.10.2020

Seinkun á sorphirðu

Því miður næst ekki að klára viðgerð á sorpbifreið fyrr en seinnipart í dag. Losun sem vera átti í dag (gult á dagatali) verður því færð yfir á mánudag til miðvikudag í næstu viku.
28.10.2020

Skipulagsauglýsing

Til að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan: