Fara í efni

Fréttir

23.10.2020

Persónuverndaryfirlýsing og persónuverndarfulltrúi Ásahrepps

Persónuvernaryfirlýsing Ásahrepps hefur verið endurskoðuð og var hún samþykkt á 32. fundi hreppsnefndar.  Nýr persónuverndarfulltrúi sveitarfélagsins er:
20.10.2020

Byggðasmölun 24. október 2020

Til að sjá auglýsingu um byggðasmölun 24. október 2020 þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan:
20.10.2020

Góðar umræður á fyrsta íbúafundi

Fyrsti rafræni íbúafundur um mögulega sameiningu Ásahreepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps fór fram í gærkvöldi. Fundurinn fór vel fram og gekk fólki vel að tengjast inn á fundinn.
19.10.2020

Sameiningarviðræður. Íbúafundur í kvöld

Íbúafundir um viðræður um mögulega sameiningu Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps fara fram þessa dagana. Fundirnir eru haldnir til að kynna verkefnið og leita eftir sjónarmiðum íbúa. Í ljósi samkomutakmarkana fara fundirnir fram rafrænt. 
18.10.2020

Staða félagsmálastjóra laus til umsóknar.

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, auglýsir stöðu Félagsmálastjóra lausa til umsóknar
16.10.2020

32. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

32. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 21. október 2020 og hefst kl. 8:30.
14.10.2020

Íbúafundir vegna hugmynda um sameiningu sveitarfélaga

Auglýsingin sem er birtist í Búkollu í vikunni má sjá hér með því að smella á krækjuna hér fyrir neðan:. 
14.10.2020

Sameining sveitarfélaga; grein formanns verkefnahóps Sveitarfélagsins Suðurland

Smellið á krækjuna hér fyrir neðan til að sjá greinina:
07.10.2020

Sorphirða

Nú er sorpbifreiðin að koma úr viðgerð í Reykjavík og í dag verður klárað að losa þar sem frá var horfið á fimmtudag sl., þ.e. frá Kálfholti, við Heiðarveg og Hagahring. Á morgun fimmtudag verður losað við Ásveg, í Holtum, Landsveit og við Þingskálaveg. Þá verður einnig losað í Þykkvabæ. Á föstudag verður losað við Ábæjarveg, Bjallaveg, Rangárvallaveg og á bæjum við Hellu og Hvolsvöll. Þann dag verður líka losað á Hvolsvelli og verður þá notast við varabíl og traktorsgröfu. Þökkum íbúum fyrir skilning á þessum töfum og ruglingi sem verið hefur á sorhirðunni undanfarna daga.
01.10.2020

Sorphirða

Vegna bilunar í sorpbifreið næst ekki að klára sorphirðu í dag þann 1. október.  Nánari upplýsingar verða birtar síðar á Facebook síðu Sorpstöðvarinnar.
30.09.2020

Opnunartími á Strönd breytist 1. október n.k.

Opnunartími á Strönd breytis núna 1. október n.k.
23.09.2020

Starf þroskaþjálfa og/eða félagsráðgjafa laust til umsóknar

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf þroskaþjálfa og /eða félagsráðgjafa í málaflokk fatlaðs fólks.
21.09.2020

Kálfholtskirkja

Guðsþjónusta verður í Kálfholtskirkju sunnudaginn 27. september n.k. klukkan 14:00.
16.09.2020

Skógræktarfélagi Rangæinga vantar fólk til gróðursetningar

Skógræktarfélag Rangæinga hefur tekið að sér stórt gróðursetningaverkefni fyrir Kolvið á Geitasandi á Rangárvöllum.  Okkur vantar fólk til að gróðursetja og er þetta alveg tilvalin fjáröflun fyrir íþróttafélög, kóra, björgunarsveitir eða aðra sem áhuga hafa.  Greitt er fyrir hverja plöntu sem í jörð fer.  Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður H Heiðmundsdóttir í síma 869-2042.
14.09.2020

31. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

31. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 16. september 2020 og hefst kl. 8:30.
24.08.2020

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Til að sjá auglýsingu Félagsþjónustunnar um sérstakan húsnæðisstuðning þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan:
19.08.2020

Auglýst eftir félagsráðgjafa í afleysingu í barnavernd.

Til að sjá auglýsingu skal smella á kræjuna hér fyrir neðan:
17.08.2020

Fegrunarátak Ásahrepps.

Vekrkefnið hefur farið vel af stað og margt í gangi. Gert er ráð fyrir að verkefni verði í gangi fram í byrjun október.  Í dag er óljóst hvernig staðið verði að uppskeruhátíð, eins og kynnt var í upphafi, við verðum bara að sjá hvernig COVID-19 þróast með haustinu.
14.08.2020

30. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

30. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 19. ágúst 2020 og hefst kl. 8:30.
05.08.2020

Tilkynning frá Sorpstöð

Vegna þjónustuskoðunar sorpbifreiðar þá færist losun í Eyjafjöllum sem vera átti á morgun fram á föstudaginn (7. ágúst) og losun sem vera átti þá (gul á sorphirðudagatali) færist fram í næstu viku. Verið er að losa plast og lífrænt.
08.07.2020

Auglýsing um skipulagsmál

Til að sjá auglýsinguna þá skal smella á krækjuna hér fyrir neðan:
01.07.2020

Sumarlokun skrifstofu Ásahrepps

Skrifstofa Ásahrepps verður lokuð vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 7. ágúst 2020.
15.06.2020

Sumarguðsþjónusta í Kálfholtskirkju

Sumarguðsþjónusta sunnudagskvöldið 21. júní kl. 20.30. Kórinn syngur lög og sálma sem hæfa árstímanum og gefa stundinni helgan og léttan blæ. Kirkjukaffi á stéttinni eftir athöfn.
12.06.2020

29. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

29. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn mánudaginn 15. júní 2020 og hefst kl. 8:30.
12.06.2020

Forsetakosningar 27. júní 2020, framlagning kjörskrár og kjörstaður.

Kjörfundur vegna forsetakosninga verður haldinn í Ásgarði fyrir alla íbúa Ásahrepps.  Kjörfundur hefst laugardaginn 27. júní n.k. klukkan 11:00 og lýkur kl. 19:00.
10.06.2020

17. júní hátíðarhöld Ásahrepps í Ásabrekkuskógi.

Hátíðin hefst kl. 10:30. Boðið verður upp á andlistmálun, blöðrur hnýttar og farið í leiki.  Kirkjukór Kálfholtskirkju syngur og hinir geysivinsælu grillarar frá kvenfélaginu grilla hamborgara og pylsur.  Fulltrúar frá Skógræktarfélagi Rangæinga munu mæta og koma með berjaplöntur sem gróðursettar verða í Ásabrekkuskógi.
03.06.2020

Skrifstofa Ásahrepps opin fyrir almenning

Frá og með 1. júní 2020 hefur skrifstofa Ásahrepps verið opnuð aftur fyrir almenning, líkt og var fyrir lokun þann 23. mars s.l. vegna COVID-19.
24.05.2020

Sandra Rún Jónsdóttir ráðin skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga

Á fundi stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga 22. maí var tekin ákvörðun um ráðningu í starf skólastjóra Tónlistarskóla Rangæinga sem auglýst var á dögunum. Niðurstaðan var að ráða Söndru Rún Jónsdóttur í starfið og mun hún hefja störf frá og með 1. ágúst 2020.
15.05.2020

28. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

28. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 20. maí 2020 og hefst kl. 8:30.
13.05.2020

Skipulagsauglýsing

Til að sjá skipulagsauglýsingu þá skal smella á krækjuna hér fyrir neðan: