Fara í efni

Fréttir

21.06.2019

Kálfholtskirkja

Sumarguðsþjónusta verður sunnudagskvöldið 23. júní kl. 20.30.
08.06.2019

16. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

16. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 12. júní 2019 á skrifstofu sveitarfélagsins.
07.06.2019

Samráðsfundur Ásahrepps og Rangárþings ytra

Samráðsfundur Ásahrepps og Rangárþings ytra
05.06.2019

Rusl plokkað í Ásahreppi

Hreppsnefnd Ásahrepps biðlaði til hreppsbúa að sameinast um að gera fínt með vegum og heimreiðum. Síðan var lokaátakið í síðustu viku, eða þann 29. maí, að fara með þjóðveginum og tína rusl sem þar fannst.
05.06.2019

Dreifing áburðar á Holtamannaafrétti

Auglýst er eftir áhugasömum aðilum til að sjá um dreifingu áburðar til uppgræðslu á Holtamannaafrétti nú í sumar.  Þessi áburðardreifing er liður í landbótum á afréttinum.  Dreifing mun verða á Búðarhálsi og Þóristungum.
22.05.2019

Forstöðumaður skólaþjónustunar / Kennsluráðgjafi

Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að sjá atvinnuauglýsinguna:
22.05.2019

Plokkdagur í Ásahreppi

Hreppsnefnd Ásahrepps ákvað á síðasta fundi sínum að efna til hreinsunarátaks, plokkdag, meðfram Suðurlandsvegi, þjóðvegi 1, í sveitarfélaginu miðvikudaginn 29. maí n.k. og hefst klukkan 17:00.
20.05.2019

Lánasérfræðingar frá Byggðastofnun heimsækja Suðurland

Lánasérfræðingar frá Byggðastofnun verða á Hvolsvelli á morgun 21. maí kl. 09.00 að Austurvegi 4, önnur hæð. Þá gefst forsvarsmönnum fyrirtækja tækifæri til að ræða sínar hugmyndir við lánasérfræðingana. Hvetjum áhugasama um að mæta og kynna sér hvað Byggðastofnun hefur upp á að bjóða.
15.05.2019

16. fundur hreppsnefndar Ásahrepps, fundur júní mánaðar

Hreppsnefnd Ásahrepps hefur samþykkt að næsti reglubundni fundur, sá 16. á þessu kjörtímabili, verði haldinn 12. júní 2019 klukkan 8:30.
10.05.2019

15. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

15. fundur hreppsnefndar Ásahrepps veður haldinn miðvikudaginn 15. maí 2019 á skrifstofu sveitarfélagsins á Laugalandi.  Fundurinn hefst kl. 8:30.
06.05.2019

Kristín Sigfúsdóttir nýr skólastjóri grunnskólans á Hellu

Kristín Sigfúsdóttir er 56 ára aðstoðarskólastjóri við Laugalandsskóla. Hún er fædd og uppalin á Selfossi en á ættir sínar að rekja í Rangávallasýslu og býr á Hellu með fjölskyldu sinni. Kristín er grunnskólakennari að mennt og hefur tekið meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á stjórnun menntastofnana. Hún hefur sinnt kennslu í grunnskólunum í Hveragerði, Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri, Hellu auk starfa sinna í Grunnskólanum á Laugalandi. Hún hefur frá árinu 2013 starfað sem aðstoðarskólastjóri við Laugalandsskóla. Þá hefur Kristín lokið 8 stigi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík og hefur mjög víðtæka reynslu sem kórstjórnandi.
30.04.2019

Fyrsta skóflustunga fyrir nýtt húsnæði Brunavarna Rangárvallasýslu bs.

Brunavarnir Rangárvallasýslu hafa fest kaup á hluta af iðnaðarhúsi sem BR Sverrisson ehf er að byggja á Hellu. Fyrsta skóflustunga að húsinu og þar með nýrri slökkvistöð fyrir Brunavarnir Rangárvallasýslu var tekin í dag að viðstöddum sveitarstjórum og oddvitum í Rangárvallasýslu ásamt Slökkviliðsstjóra og stjórnarmönnum Brunavarna Rangárvallssýslu.
17.04.2019

Reikningur fyrir fjallskilum 2018.

Krafa vegna fjallskila 2018 er komin í bankainnheimtu. 
15.04.2019

14. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

14. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi miðvikudaginn 17. apríl n.k.  Fundurinn hefst klukkan 8:30.
15.04.2019

Kálfholtskirkja

Kálfholtskirkja
27.03.2019

Auglýsing um skipulagsmál

Smelltu á krækjuna hér fyrir neðan til að sjá auglýsinguna:
15.03.2019

13. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

13. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi miðvikudaginn 20. mars n.k.  Fundurinn hefst klukkan 8:30.
11.03.2019

Guðsjónusta í Kálfholtskirkju.

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 17. mars 2019 klukkan 14:00.
26.02.2019

Sorpstöð Rangárvallasýslu á Facebook.

Sorpstöð Rangárvallasýslu er komin með Facebook síðu.
25.02.2019

Samráðsfundir um atvinnustefnu Vatnajöklulsþjóðgarðs

Smellið á krækjuna hér fyrir neðan til að fá upplýsingar um samráðsfundina:
11.02.2019

Guðsþjónusta í Kálfholtskirkju

Guðsþjónusta verður í Kálfholtskirkju sunnudaginn 17. febrúar 2019 klukkan 14:00.
11.02.2019

Fréttabréf Félags eldri borgara Rangárvallasýslu 2019

Til að lesa fréttabréfið ýtu á krækjuna hér fyrir neðan.
04.02.2019

Atvinnuauglýsing

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. auglýsir eftir starfsmanni að Sorpstöðinni á Strönd.
09.01.2019

Auglýsing um skipulagsmál

Smellið hér til að sjá auglýsingu
07.01.2019

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15 - 17 ára námsmanna

Foreldrar 15 – 17 ára barna sem hafa rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi eru minntir á að skila þarf inn nýrri umsókn í upphafi skólaárs. Umsóknir er hægt að nálgast á heimasíðunni felagsmal.is. Með umsóknum þarf að fylgja húsaleigusamningur og staðfesting á námi barns. Athuga ber að sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára er samþykktur eina önn í senn og skila ber staðfestingu á áframhaldandi námi ungmennis við upphaf nýrrar annar. Skila þarf umsóknum og fylgigögnum á skrifstofu félagsþjónustunnar að Suðurlandsvegi 1 – 3, 850 Hellu eða á netfangið annette@felagsmal.is
04.01.2019

11. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

11. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 9. janúar n.k. klukkan 8:30 á skrifstofu Ásahrepps.  Hægt er að skoða dagskrá fundarins með því að smella á krækjuna hér fyrir neðan.
04.01.2019

Móttökuritari óskast til starfa

Auglýsing: Móttökuritari óskast til starfa