Fara í efni

Fréttir

15.12.2018

10. fundur hreppsnefndar Ásahrepps.

10. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 19. desember n.k. klukkan 8:30 á skrifstofu Ásahrepps.  Hægt er að skoða dagskrá fundarins með því að smella á krækjuna hér fyrir neðan.
12.12.2018

Gjöf í tilefni 60 ára afmælis Laugalandsskóla.

Í tilefni 60 ára afmælis Laugalandsskóla, sem var haldið þann 8. desember s.l. gáfu Foreldrafélag Laugalandsskóla, Kvenfélagið Framtíðin, Kvenfélagið Eining og Kvenfélagið Lóa allan búnað fyrir nýjan frisbýgolfvöll sem settur verður upp á Laugalandi.
05.12.2018

9. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

Aukafundur var haldinn hjá hreppsnefnd Ásahrepps í dag, þann 5. desember 2018. Fyrir fundinum lá að taka fjárhagsáætlun Ásahrepps 2019 - 2022 til lokaumræðu og afgreiðslu.  Fundargerð má finna á heimasíðunni undir fundargerðir hreppsnefndar.
05.12.2018

Jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður laugardaginn 15.
03.12.2018

Land undir urðunarstað

Sorpstöð Suðurlands bs. óskar eftir landi undir urðunarstað til kaups eða leigu. Æskileg staðsetning er á svæðinu frá Hellisheiði í vestri að Jökulsá á Sólheimasandi í austri. Æskilegt er að landið sé vel staðsett gagnvart samgöngum á landi og dreifikerfi raforku, en fjarri vatnsverndar- og  útivistarsvæðum. Lágmarksstærð lands er 30 ha. Á staðnum yrði tekið við almennum úrgangi til urðunar, þó ekki lífrænum úrgangi. Áætlaður rekstrartími er 30 ár en leigutími að lágmarki 60 ár ef um leigu yrði að ræða.
27.11.2018

Aðventustund í Kálfholtskirkju.

Aðventustund sunnudaginn 2. des. kl. 17.00.
19.11.2018

8. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 21. nóvmeber 2018.

8. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi miðvikudaginn 21. nóvmeber 2018 klukkan 8:30.
24.10.2018

Dægurlagamessa í Kálfholtskirkju

Dægurlagamessa“ verður sunnudaginn 28. okt. kl. 14.00. Í guðsþjónustunni mun kórinn syngja dægurlög með trúarlegum textum við undirleik Guðmundar Eiríkssonar kórstjóra.
24.10.2018

Byggðasmölun 2018

Smölun heimalanda hefur verið ákveðin laugardaginn 27. október 2018 samkvæmt fjallskilasamþykkt fyrir Rangárvallasýslu. 
10.10.2018

Dagur sauðkindarinnar

verður haldinn í Rangárhöllinni á Rangárbökkum við Hellu 20.október kl. 14-17.
10.10.2018

Breyttur tími fastra funda hreppsnefndar Ásahrepps

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á 7. fundi sínum þann 10. október 2018 að breyta tímasetningu á föstum fundartíma hreppsnefndar.  Samkvæmt þeirri ákvörðun verða fastir fundartímar hreppsnefndar þriðji (3) miðvikudagur í hverjum mánuði.  Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður því haldinn 21. nóvember 2018.
05.10.2018

7. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 10. október 2018.

7. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi miðvikudaginn 10. október 2018 klukkan 8:30.
02.10.2018

Dagur sauðkindarinnar

verður haldinn í Rangárhöllinni á Rangárbökkum við Hellu 13.október kl. 14-17.
24.09.2018

Viðvera á skrifstofu Ásahrepps 26. september 2018.

Sveitarstjóri verður ekki á skrifstofu Ásahrepps miðvikudaginn 26. september n.k. vegna þátttöku á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið verður á Akureyri dagana 26. - 28.  september n.k.  Skrifstofan verður samt opin á venjulegum tíma frá klukkan 12:00 til 16:00 og verður Ragnheiður starfsmaður skrifstofunnar á staðnum.
19.09.2018

Prjónakvöld í Uppspuna.

Fimmtudaginn 20. september n.k. verður haldið prjónakvöld í Uppspuna frá klukkan 19:30 til 21:30.  Stefnt er að því að halda slík prjónakvöld þriðja fimmtudag í hverjum mánuði.
19.09.2018

Auglýsing um skipulagsmál.

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
18.09.2018

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum.

UPPBYGGINGARSJÓÐUR SUÐURLANDS AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM
14.09.2018

Plastlaus september

Hreppsnefnd Ásahrepps hvetur alla íbúa Ásahrepps til þess að taka þátt í árverknisátakinu “Plastlaus september”.  Átakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti.
11.09.2018

6. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 12. september 2018.

6. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi þann 12. september 2018 klukkan 8:30.
31.08.2018

Hægt að sækja um styrki til NATA.

Opið er fyrir umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Veittir eru styrkir til markaðs- og þróunarverkefna annars vegar og ferðastyrkir hins vegar.
27.08.2018

Mótun umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Suðurland.

Áhugasömum aðilum hér með boðið að taka þátt í fyrsta áfanga í mótun umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Suðurland. Haldnir verða sjö opnir samráðsfundir á Suðurlandi. Viðfangsefni fundanna er að greina helstu tækifæri og álitamál á sviði umhverfis- og auðlindamála, auk þess verða kynnt áhugaverð fordæmi í þessum efnum. 
14.08.2018

Kynningarfundur vegna áforma um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

Umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði síðastliðið vor þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga. Þá sitja fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu í nefndinni.
12.08.2018

Skrifstofa Ásahrepps er opin milli 13:00 og 16:00 þann 13. ágúst 2018.

Næsta mánudag, þann 13. ágúst 2018, verður skrifstofa Ásahrepps opinn á milli 13:00 og 16:00.
05.08.2018

5. fundur hreppsnefndar Ásahrepps, 8. ágúst 2018.

5. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps miðvikudaginn 8. ágúst 2018.  Fundurinn hefst klukkan 8:30.
03.08.2018

Sýning á handavinnu Jórunnar Eggertsdóttur í Lækjartúni

Sýning á handavinnu Jórunnar Eggertsdóttur í Lækjartúni.
30.07.2018

Auglýsing um skipulagsmál.

Skipulagsauglýsing 1. ágúst 2018
14.07.2018

4. fundur hreppsnefndar Ásahrepps haldinn 18. júlí 2018 á Laugalandi kl. 8:30

Dagskrá 4. hreppsnefndarfundar haldinn á Laugalandi 18.07.2018 kl. 8:30 
11.07.2018

Umsækjendur um starf sveitarstjóra Ásahrepps

Umsækjendur um starf sveitarstjóra Ásahrepps.
04.07.2018

Auglýsing eftir sveitarstjóra í Ásahreppi

Auglýsing eftir sveitarstjóra í Ásahreppi