Fara í efni

Fréttir

06.02.2018

Skipulagsfulltrúi óskast til starfa

Laus er til umsóknar staða skipulagsfulltrúa hjá Umhverfis- og tæknisviði uppsveita. Að embættinu standa sveitarfélögin Grímsnes og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Flóahreppur og Ásahreppur.  Aðsetur skipulagsfulltrúa er að Dalbraut 12 á Laugarvatni.
25.01.2018

Þorrablót Áshreppinga

verður haldið á Laugalandi laugardagskvöldið 3. febrúar.
15.01.2018

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minnir á að Lífshlaupið 2018 hefst 31. janúar

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.
08.01.2018

Fundarboð hreppsnefndar

Dagskrá 54. fundar hreppsnefndar dagsettur 10. janúar 2018 kl. 9:00
05.01.2018

Opið fyrir umsóknir um styrki frá NATA

Nú er opið fyrir umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Umsóknafrestur rennur út á miðnætti 20. febrúar. Sótt er um á vef NATA á rafrænum eyðublöðum sem þar eru.
04.01.2018

SÍBS líf og heilsa á Suðurlandi í janúar, heilsufarsmælingar

Hjartaheill, Samtök sykursjúkra, Samtök lungnasjúklinga og SÍBS í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) munu bjóða íbúum á Suðurlandi upp á ókeypis heilsufarsmælingu 22. - 26. janúar næstkomandi undir merkjum "SÍBS líf og heilsa" verkefnisins. Íbúum Hveragerðis og nærsveita var boðið í mælingu þann 23. nóvember.  Við munum senda út boðsbréf á alla íbúa í póstnúmerum 800, 801, 820, 825, 815, 840 og 845, fimmtudaginn 18. og föstudaginn 19. janúar.  Með vorinu munum við halda austur á bóginn og heimsækja m.a. Vík, Vestmannaeyjar og Kirkjubæjarklaustur. 
19.12.2017

Leikskólinn á Laugalandi Blómstrar

Aðventan á Leikskólanum á Laugalandi hefur heldur betur verið skemmtileg.  Börnin hafa notið þess að leika sér bæði inni í hlýjunni og úti í fjölbreyttu íslensku vetrarveðri.  Börnin eru alltaf eitthvað að braska og nú síðustu vikur hafa þau m.a. verið að undirbúa jólin. Búa til jólagjafir, jólapappír, kort og ýmislegt jólaföndur.  Það er alltaf nóg að gera og einkennist starfið af mikilli gleði, sköpun, söng, sögum og leik. Það er líka gaman að segja frá því að á undanförnum vikum hafa leikskólanum borist ýmsar gjafir en leikskólinn á sér marga vini og velunnara. Í síðasta mánuði gaf Bílaverkstæðið á Rauðalæk leikskólanum stórt og mikið snjallsjónvarp og einir foreldrar gáfu sleða og snjóþotu. Á Aðventuhátíð Kvenfélagsins Einingar var leikskólanum færð stór peningaupphæð úr Barnasjóði félagsins og einnig færði Kvenfélagið Framtíðin stóra upphæð sem notuð verður til að setja upp klifurvegg fyrir börnin. Þetta kemur sér allt ljómandi vel þar sem nú í haust var ný deild við leikskólann opnuð þar sem börnum í sveitinni hefur jafnt og þétt verið að fjölga.  Við á Leikskólanum Laugalandi horfum bjartsýn til framtíðarinnar. 
19.12.2017

Kálfholtskirkja

Aftansöngur verður í Kálfholtskirkju á aðfangadag 24. des. kl. 16.00.
11.12.2017

Fundarboð hreppsnefndar

Dagskrá 53. fundar hreppsnefndar dagsettur 13. desember 2017 kl. 9:00
29.11.2017

Eldvarnir

Ágætu íbúar,
28.11.2017

Kálfholtskirkjakirkja

Við fögnum jólaföstu með aðventustund í Kálfholtskirkju sunnudaginn. 3. des. nk. kl. 17.00.
22.11.2017

Borun hætt á Laugaland

Veitur hafa nú hætt borun í landi Götu við Laugaland. Markmið borunarinnar var að afla heits vatns og auka þannig nýtanlegan forða fyrir Rangárveitur er þjóna Rangárþingum og Ásahreppi að hluta. Á þessu svæði eru m.a. þéttbýliskjarnarnir Hella og Hvolsvöllur. Upphaflega var gert ráð fyrir að borholan yrði 1800m djúp en ákveðið var að dýpka holuna í von um að hitta á góðar vatnsæðar. Var borað niður á 1855m dýpi en árangur hefur ekki verið í takt við væntingar og núverandi aðstæður bjóða ekki upp á frekari borun á svæðinu. Veitur munu gera mælingar á holunni og taka ákvarðanir um frekari forðaöflun fyrir Rangárveitur í kjölfarið.
07.11.2017

Aðgerðir vegna borunar eftir heitu vatni við Laugaland

Eins og kunnugt er bora Veitur nú eftir heitu vatni í Laugalandi í Holtum. Markmiðið er að auka nýtanlegan forða Rangárveitna en notkun heits vatns hefur aukist til muna undanfarin ár í veitunni. Verkið hefur tafist nokkuð, ekki síst vegna nálægðar borstaðarins við aðrar heitavatnsholur veitunnar; gæta þarf sérstaklega að því að verja þær á meðan á borun stendur. Til að mynda hefur ekki verið hægt að nýta heitustu holuna í Laugalandi þar sem stöðva þurfti vinnslu af þessum sökum.
06.11.2017

Fundarboð hreppsnefndar

Dagskrá 51. fundar hreppsnefndar dagsettur 8. nóvember 2017 kl. 9:00
01.11.2017

Náms- og rannsóknarstyrkur

Náms- og rannsóknarstyrkur
01.11.2017

Opið hús á Lundi

Hið árlega opna hús verður á Lundi laugardaginn 11. nóvember kl. 14.-16.
18.10.2017

Dagur sauðkindarinnar í Rangárþingi var haldinn hátíðlegur í Skeiðvangi Hvolsvelli í 10. sinn

Þar mega bændur frá Þjórsá að Markarfljóti koma með úrvalsgripi sína og eru þeir dæmdir og verðlaunaðir. Dæmt er í þremur flokkum lambhrútum veturgömlum hrútum og gimbrum. Í hverjum flokki  eru saman hvítir, mislitir, hyrndir og kollóttir. Dómarar voru Hermann Árnason, Reynir Stefánsson og Berglind Guðgeirsdóttir.
18.10.2017

Kjörfundur í Ásahreppi

Kjörfundur í Ásahreppi vegna alþingiskosninga verður haldinn í félagsheimilinu Ásgarði laugardaginn 28.október nk. hefst kl: 11:00 og lýkur kl: 19:00.
16.10.2017

Kálfholtskirkja

Guðsþjónusta verður í Kálfholtskirkju 22. okt. kl.14.
13.10.2017

Framlagning kjörskrár

Kjörskrá vegna kosninga til Alþingis, sem haldnar verða laugardaginn 28. október 2017, mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins til kjördags.
09.10.2017

Fundarboð hreppsnefndar

Dagskrá 50. fundar hreppsnefndar dagsettur 11. október 2017 kl. 9:00