Fara í efni

Fréttir

27.04.2022

Skipulagsauglýsing UTU 27. apríl 2022

Til þess að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjuna: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/ eða beint á auglýsinguna sjálfa:
20.04.2022

Sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022

Framlagning kjörskrár og kjörstaður í Ásahreppi.
14.04.2022

54. fundur hreppsnefndar Ásahrepps.

54. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 20. apríl 2022 á skrifstofu hreppsins að Laugalandi.  Fundur hefst klukkan 8:30.
13.04.2022

Niðurstaða skoðanakönnunar um sameiningu sveitarfélaga

Í janúar og febrúar á þessu ári var Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fengin til að gera könnun meðal kosningabærra íbúa Ásahrepps.  Markmið könnunarinnar var að skoða hug fóks í Ásahreppi til sameiningar sveitarfélaga á Suðurlandi.
11.04.2022

Frá kjörstjórn Ásahrepps

Þar sem engir framboðslistar bárust fyrir lok framboðsfrests vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara þann 14. maí næstkomandi fara fram óbundnar kosningar í Ásahreppi. 
11.04.2022

Kálfholtskirkja

Hátíðarguðsþjónusta verður  á 2. í páskum, 18. apríl, kl. 14.00.
06.04.2022

Brunavarnaráætlun Rangárvallasýslu

Föstudaginn 1. apríl sl. var ný brunavarnaáætlun fyrir starfssvæði Brunavarna Rangárvallasýslu samþykkt og undirrituð af forstjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. 
04.04.2022

Skil á fromboðum í Ásahreppi

Skil á framboðum í Ásahreppi
22.03.2022

Kálfholtskirkja

Það verður kvöldguðsþjónusta í Kálfholtskirkju á sunnudagskvöldið 27. mars nk. kl. 20.00. Kórinn syngur við undirleik Eyrúnar organista og fermingarbörnin og fjölskyldur þeirra eru sérstaklega boðin velkomin. Aðalsafnaðarfundur verður síðan haldinn á eftir.
12.03.2022

52. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

Miðvikudaginn 16. mars 2022 verður haldinn 52. fundur hreppsnefndar Ásahrepps.  Fundurinn hefst klukkan 8:30 og verður haldinn í fjarfundarkerfi Zoom.
07.03.2022

Alútboð

Nauthagi 2, Selfossi
07.03.2022

Atvinnuauglýsing

Atvinna
02.03.2022

Enn frekari seinkun á sorphirðu

Því miður hefur dregist að fá varahluti í sorpbifreiðina. Hefur því ekki hafist söfnun á pappír og lífrænum úrgangi þessa vikuna. Vonir standa til að hægt verði að fara af stað síðar í dag eða á morgun. Verður því seinkun á losun hjá flestum íbúum þessa vikuna og fram í næstu, en fyrir lok næstu viku verður búið að losa hjá öllum. Afsökum þau óþægindi sem þessi töf veldur.
01.03.2022

Stofnfundur Ferðafélags Rangæinga

Áhugahópur um stofnun Ferðafélags Rangæinga hefur ákveðið að blása til stofnfundar þriðjudaginn 1. mars 2022 kl 20:00 í Menningarhúsinu á Hellu (Safnaðarheimili). Ferðafélag Rangæinga verður áhugamannafélag með þann tilgang að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar í okkar fagra héraði.
28.02.2022

Seinkun á losun úrgangs í þessari viku

Vegna bilunar í sorpbifreið hefst losun þessa vikuna á morgun þriðjudag 1.mars. Verður því losað í Fljótshlíð og V-Landeyjum á morgun, A-Landeyjum og Merkurbæjum á miðvikudag o.s.frv.
22.02.2022

Seinkun sorphirðu vegna veðurs

Sorphirða á Hellu frestast til morguns. Í dag verður haldið áfram að losa sorp í dreifbýli en sorphirðudagatalið mun riðlast eitthvað í vikunni, en allir ættu að hafa fengið losun fyrir vikulok. Nú er verið að losa almennt og lífrænt sorp. Minnum íbúa á að hafa greitt aðgengi að tunnum fyrir starfsmenn sorphirðunnar.
14.02.2022

Kálfholtskirkja

Guðsþjónusta verður næsta sunnudag 20. febrúar, kl. 14.00.
11.02.2022

51. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

Miðvikudginn 16. febrúar n.k. verður haldinn 51. fundur hreppsnefndar.  Fundurinn fer fram í fjarfundarkerfi Zoom og hefst klukkan 8:30. 
09.02.2022

Skipulagsauglýsing UTU 9. febrúar 2022

Til að sjá auglýsinguna er hægt að fara á heimasíðu UTU með því að smella á krækjuna: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/ eða beint á auglýsinguna sjálfa: https://www.utu.is/skipulagsauglysing-sem-birtist-9-februar-2022/
07.02.2022

Röskun á sorphirðu 7. febrúar 2022

Vegna óveðurs færist sorphirða sem vera átti í dag í dreifbýli (ljósgrænt á sorphirðudagatali) yfir á næstu daga vikunnar.
06.02.2022

Skólahald fellur niður á mánudag 7. febrúar 2022

Gefin hefur verið út rauð viðvörun vegna óveðurs sem ganga mun inn á landið í nótt. Vegna þessa fellur allt skólahald leik- og grunnskóla niður mánudaginn 7. febrúar, bæði á Laugalandi og Hellu. Aðrar stofnanir sveitarfélagsins verða lokaðar til hádegis en staðan verður að sjálfsögðu endurmetin eftir því sem fram vindur. Snjómokstri í þéttbýli og á heimreiðum verður ekki sinnt fyrr en veðrið gengur niður.
31.01.2022

Stækkun Lækjarbotnaveitu lokið

Sá áfangi náðist nú í janúar að framkvæmdum lauk við stækkun s.k. Lækjarbotnaveitu hjá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá 2019 en um er að ræða nýjan miðlunartank í s.k. Fögrubrekku í Landsveit sem tengir saman vatnsöflunarsvæði veitunnar í Lækjarbotnum og m.a. dreifikerfi veitunnar í Bjálmholti, Götu og við Skammbeinsstaði. Með tilkomu þessarar mikilvægu framkvæmdar þá er leyst úr vatnsþörf veitusvæðisins til langrar framtíðar og afhendingaröryggi veitunnar er tryggt. Verktaki við framkvæmdina var Þjótandi ehf og undirverktaki byggingarinnar í Fögrubrekku var Tré- og Straumur ehf en heildarkostnaður við verkið var um 230 mkr. Það eru sveitarfélögin Rangárþing ytra og Ásahreppur sem eiga veitukerfið en umsjón með rekstri og framkvæmdum er í höndum Þjónustumiðstöðvar Rangárþings ytra.
21.01.2022

Auglýst eftir neyðarheimilum

Barnavernd Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu  í samstarfi við Barnavernd Árborgar auglýsa eftir umsóknum frá fjölskyldum og/eða einstaklingum sem eru tilbúin til að veita börnum móttöku á einkaheimilum.  
21.01.2022

50. fundur hreppsnefndar Ásahrepps.

50. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn í fjarfundarkerfi ZOOM, miðvikudaginn 26. janúar 2022.  Fundurinn hefst klukkan 8:30.
28.12.2021

Skrifstofa Ásahrepps lokuð 29. desember 2021

Skrifstofa Ásahrepps verður lokuð miðvikudaginn 29. desember 2021.  Hægt er að ná sambandi við sveitarstjóra í síma 897-0890 eða senda tölvuskeyti á netfangið valtyr@asahreppur.is.