Fara í efni

Fréttir

18.11.2022

Kálfholtskirkja

Við fögnum aðventunni með helgistund 1. sd. í aðventu 27. nóv. kl. 17.00.
14.11.2022

Íþrótta- og tómstundarstyrkur 2022

Minnt er á að síðasti dagur til að skila inn umsókn um íþrótta- og tómstundarstyrk hjá Ásahreppi fyrir árið 2022 er þann 15. desember n.k.
11.11.2022

6. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

6. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi, miðvikudaginn 16. nóvember 2023.  Fundur hefst klukkan 8:30.
07.11.2022

Ráðning framkvæmdastjóra Félags- og skólaþjónustu.

Stjórn Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu (FSRV) hefur ákveðið að ráða Svövu Davíðsdóttur starfandi félagsmálastjóra FSRV sem nýjan framkvæmdastjóra byggðasamlagsins. Tveir sóttu um starfið og var ákvörðun tekin að loknum viðtölum við umsækjendur.
20.10.2022

BYGGÐASMÖLUN

Byggðasmölun skal fara fram sunnudaginn 23. október 2022 í samræmi við Fjallskilasamþykkt fyrir Rangárvallasýslu.
17.10.2022

Kálfholtskirkja

Það verður guðsþjónusta í Kálfholtskirkju á sunnudaginn 23. okt. kl. 14.00. Kórinn syngur við undirleik Eyrúnar organista og fermingarbörnin og fjölskyldur þeirra boðin sérstaklega velkomin.
10.10.2022

Atvinnuauglýsing; framkvæmdastjóri Félags- og skólaþjónustu

Framkvæmdastjóri Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
10.10.2022

Eydís Indriðadóttir gefur Ásahreppi landspilduna Faxatröð

Eydís Indriðadóttir hefur gefið Ásahreppi landspilduna, Faxatröð, sem liggur með landi hennar Ásborg og landspildna úr landi Áss 3.  Um Faxatröð verður lagður stígur sem nýta má sem reiðstíg en jafnframt sem vegtengingu fyrir eigendur landspildna úr Ási 3 sem liggja með Faxatröð.  Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á síðasta fundi sínum og setja á fót nefnd sem vinna skal að framtíðarsýn um legu og lagningu reiðhjóla-, göngu- og reiðstíga innan sveitarfélagsins.  Þessi gjöf Eydísar er mikilvægur þáttur í tengingu frá Ásmundarstöðum að Áshverfinu og er Eydísi þakkað af alhug fyrir þetta veglega framlag til enn frekari eflingar á reiðstígakerfi Ásahrepps.
21.09.2022

Ráðning hjúkrunarforstjóra Lundar

Lilja Einarsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunarforstjóri Lundar. Stjórn Lundar ásamt faglegum ráðgjafa ráðningarskrifstofu voru samróma um að Lilja væri hæfust sjö umsækjenda til að gegna starfinu. Lilja er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur einnig lokið viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands auk þess að hafa sótt ýmis námskeið í tengslum við hjúkrun og rekstur.
16.09.2022

4. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

4. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 21. september 2022.  Fundarstaður er skrifstofa Ásahrepps að Laugalandi og hefst fundurinn klukkan 8:30.
14.09.2022

Þjónustukönnun Sorpstöðvar Rangárvallasýslu

Ef þið eruð íbúar og/eða fasteignaeigendur í Ásahrepp, Rangárþingi ytra eða Rangárþingi eystra þá biðjum við ykkur um að taka þessa könnun með því að smella á linkinn hér fyrir neða
12.09.2022

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu heldur utan um afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings sem sveitarfélögum er skylt að greiða samkvæmt lögum um húsnæðisbætur nr. 76/2016. Sérstakur húsnæðisstuðningur kemur þá í stað sérstakra húsaleigubóta. Nánari upplýsingar um skilyrði fyrir samþykki umsóknar og fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings má sjá í reglum um sérstakan húsnæðisstuðning inn á heimasíðu Félagsþjónustunnar, www.felagsmal.is.
12.09.2022

Frá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.

GRENNDARKYNNINGARGÖGN EINGÖNGU BIRT Í PÓSTHÓLFI Á ISLAND.IS
05.09.2022

Umsækjendur um starf hjúkrunarforstjóra Lundar

Umsóknarfrestur um starf hjúkrunarforstjóra Lundar á Hellu rann út þann 22. ágúst síðastliðinn.  Alls bárust átta umsóknir en ein var dregin til baka. Umsækjendur eru:
15.08.2022

Aðalfundur Fjallskiladeildar Holtamannaafréttar

Boðað er til aðalfundar Fjallskiladeildar Holtamannaafréttar að Lauglandi í hreppssal Ásahrepps, fimmtudaginn 18. ágúst 2022 klukkan 20:00.
12.08.2022

3. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

3. fundur hreppsnefndar Ásahrepps kjörtímabilið 2022-2026 verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps miðvikudaginn 17. ágúst 2022.  Fundur hefst klukkan 8:30.
10.08.2022

Ritari óskast hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.

Laust er til umsóknar starf ritara hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.
15.07.2022

Skipulagsauglýsing UTU 14. júlí 2022

Til að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjunar: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/ eða beint á auglýsinguna sjálfa: https://www.utu.is/skipulagsauglysing-sem-birtist-14-juli-2022/
29.06.2022

Lokun skrifstofu Ásahrepps vegna sumarleyfa

Skrifstofa Ásahrepps verður lokuð vegna sumaarleyfa frá 4. júlí 2021 til og með 5. ágúst 2022, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 2. fundi sínum.
27.06.2022

Opnun Holtamannaafréttar fyrir upprekstur

Að höfðu samráði við Landgræðsluna verður heimilt að hefja upprekstur á Holtamannaafrétt fimmtudaginn 30. júní 2022.
24.06.2022

2. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

2. fundur hreppsnefndar Ásahrepps, kjörtímabilið 2022-2026, verður haldinn miðvikudaginn 29. júní 2022 á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi.  Fundur hefst klukkan 8:30.
21.06.2022

Röskun á sorphirðu

Röskun verður á sorphirðu þessa vikuna vegna bilunar í bíl. Þeir sem ekki hafa fengið plastlosun fá hana í dag. Á morgun hefst losun á almennu sorpi í Fljótshlíð og V-Landeyjum. Losun á almennu sorpi hliðrast um einn dag hjá öllum þessa vikuna.
16.06.2022

Skipulagsauglýsing UTU, 16. júní 2022

Til þess að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjuna: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/ eða beint á auglýsinguna sjálfa:
29.05.2022

1. fundur hreppsnefndar Ásahrepps kjörtímabilið 2022-2026

1. fundur nýkjörinnar hreppsnefndar Ásahepps, kjörtímabilið 2022-2026, verður haldinn föstudaginn 3. júní 2022.  Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi og hefst klukkan 9:00.
18.05.2022

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Ásahreppi 2022

Kjörfundur var haldinn að Ásgarði þann 14. maí 2022. Kjörfundur hófst klukkan 10:00 og var lokið klukkan 18:00.  Talning atkvæða hófst klukkan 19:00 og lauk klukkan 21:00.  Á kjörskrá vouru 179 einstaklingar.  Alls greiddu 130 atkvæði og var kjörsókn því 72,6%.
13.05.2022

55. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

55. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skirfstofu sveitarfélagsins að Laugalandi, miðvikudaginn 18. maí 2022.  Fundur hefst klukkan 8:30.
10.05.2022

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. auglýsir sumarhreinsun fyrir íbúa í dreifbýli Rangárvallasýslu.

Frá miðjum maí og fram í júní mun Sorpstöðin bjóða uppá að hirða járn og timbur heima á bæjum
29.04.2022

Samráðsfundur Ásahrepps og Rangárþings ytra

Samráðsfundur Ásahrepps og Rangárþings ytra