Fara í efni

Fréttir

15.03.2023

Fréttapunktar af vettvangi Ásahrepps, 15. mars 2023

Sótt um styrk frá reiðveganefnd Geysis
10.03.2023

11. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

11. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 15. mars 2023 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.  Fundur hefst klukkan 8:30.
10.03.2023

Atvinnuauglýsing

Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu auglýsir eftir ritara í 70% starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir góðri tölvukunáttu og góðum samskiptahæfileikum. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um Félags- og Skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Íbúar eru tæplega sex þúsund.
06.03.2023

Kálfholtskirkja

Guðsþjónusta næsta sunnudag 12. mars, kl. 14.00.  Aðalsafnaðarfundur verður haldinn eftir athöfn.
01.03.2023

Atvinnuauglýsing

VISS vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða deildastjóra sem allra fyrst í 55% stöðu sem getur aukist með vorinu. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu sem  vinnur eftir hugmyndafræði „þjónandi leiðsögn“ og „sjálfstætt líf. Um er að ræða nýja starfseiningu á Hvolsvelli sem hóf starfsemi í janúar 2021.  Deildarstjórinn vinnur  samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.  
23.02.2023

Auglýst erftir leikskólaráðgjafa

Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, auglýsir eftir leikskólaráðgjafa í hópinn. Nýbúið er að sameina Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu og kæmi leikskólaráðgjafi að mótun verkefna í samstarfi við aðra starfsmenn hjá stofnuninni.
08.02.2023

Svæðisskipulag Suðurhálendis

Ákveðið hefur verið að framlengja frest til athugasemda við svæðisskipulagstillögu Suðrhálendis til 19. febrúar n.k.
06.02.2023

Kálfholtskirkja

Sunnudaginn 12. febrúar er guðsþjónusta kl. 14.00. Ritningarlestur, predikun, bænir og  kórinn syngur við undirleik Eyrúnar organista.  Verið velkomin í kirkju.
06.02.2023

Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu

Verður haldinn í Björkinni á Hvolsvelli 14. febrúar næstkomandi og byrjar kl. 20:00.
30.01.2023

Skrifstofan lokuð í dag 30. janúar 2023

Skrifstofa Ásahrepps verður lokuð í dag vegna slæms veðurútlits.
20.01.2023

9. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

9. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn mánudaginn 23. janúar 2023 á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi.  Fundur hefst klukkan 8:30.
11.01.2023

Bílstjóri á sorphirðubíl

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir að ráða bílstjóra í 100% starf. Um framtíðarstarf er að ræða.
11.01.2023

Atvinnuauglýsing

Atvinnuauglýsing
11.01.2023

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu heldur utan um afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings sem sveitarfélögum er skylt að greiða samkvæmt lögum um húsnæðisbætur nr. 76/2016. Sérstakur húsnæðisstuðningur kemur þá í stað sérstakra húsaleigubóta. Nánari upplýsingar um skilyrði fyrir samþykki umsóknar og fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings má sjá í reglum um sérstakan húsnæðisstuðning inn á heimasíðu Félagsþjónustunnar, www.felagsmal.is.
28.12.2022

Kálfholtskirkja

Því miður þurftum við að fella niður aftansönginn á aðfangadag vegna veðurs og ófærðar, en í staðinn verður sameiginleg jóla- og áramótaguðsþjónusta í Kálfholtskirkju á gamlársdag kl. 14.00 fyrir prestakallið.
19.12.2022

Skrifstofa Ásahrepps lokuð í dag vegna veðurs

Skrifstofa Ásahrepps verður lokuð í dag vegna veðurs.
18.12.2022

FRESTUN upplýsingafundar um félagsþjónustu og félagsstarf eldri borgara

Vegna slæmrar veðurspár hefur verið tekin ákvörðun um að fresta upplýsingafundi um félagsþjónustu og félagsstarf eldri borgara sem halda átti mánudaginn 19. desember n.k. að Laugalandi.
16.12.2022

8. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

8. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi, miðvikudaginn 21. desember 2022.  Fundur hefst klukkan 8:30.
12.12.2022

Upplýsingafundur um félagsþjónustu og félagsstarf eldriborgara

Hreppsnefnd Ásahrepps býður öllum íbúum Ásahrepps til upplýsingafundar að Laugalandi í Holtum, matsal. 
07.12.2022

Frétt frá ritstjóra Goðasteins

Guðjón Ragnar Jónasson var í byrjun nóvember ráðinn ritstjóri Goðasteins, en leitin að nýjum ritstjóra tók lengri tíma en áformað var. Nýr Goðasteinn kemur því út í byrjun febrúar og þeir sem hafa áhuga á að gerast áskrifendur að Goðasteini hafi samband í gegnum netfangið gudjon@bifrost.is . Þeir sem gerast áskrifendur nú geta fengið eldri blöð á vildarkjörum. Gaman er frá því að segja að Goðasteinn nýtur mikillar velvildar í héraði og mýmargir hafa léð efnisöfluninni í blaðið lið. Ekki má heldur gleyma þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrkt hafa útgáfuna og ljóst má vera að Rangæingum nær og fjær er hugað um að halda útgáfu Goðasteins áfram. Í huga þeirra sem standa að útgáfunni fer því fjarri að eitthvert hausthljóð sé komið í vindinn.
07.12.2022

7. fundur hreppsnefndar Ásahrepps - aukafundur

Aukafundur verður haldinn hjá hreppsnefnd Ásahrepps, föstudaginn 9. desember 2022, klukkan 8:30.  Fundarstaður er skrifstofa Ásahrepps að Laugalandi.
05.12.2022

Framhaldstilraunaverkefni Jarðgerðar á Strönd!

Við leitum að Rangæingum sem vilja taka þátt í að móta nýja hringrás fyrir lífrænan heimilisúrgang í sýslunni!
28.11.2022

Atvinnuauglýsing

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf þroskaþjálfa og/eða félagsráðgjafa í málaflokk fatlaðs fólks. Um er að ræða 50 – 100 % starfshlutfall. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri Félags- og Skólaþjónustu Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu sem annast félags- og Skólaþjónustu sveitarfélaganna í Ásahreppi, Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Skrifstofa félagsþjónustunnar er staðsett á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b.  5.300 manns. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og þroskaþjálfafélags Íslands,  Félagsráðgjafafélags Íslands eða annara félaga sem við eiga.
28.11.2022

Árleg jólatrjáasala

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður laugardaginn 17. desember n.k frá kl. 12-15  í Bolholtsskógi á Rangárvöllum.
21.11.2022

Fyrsta skóflustunga og undirritun samnings vegna íbúðarkjarna

Fyrsta skóflustunga að íbúðakjarna fyrir fatlað fólk að Nautahaga 2 var tekin föstudaginn 18. nóvember. Í kjölfarið var samningur Mineral ehf og Arnardrangs hses undirritaður í Grænumörk.